Færsluflokkur: Bloggar
29.5.2007 | 12:22
Ofbeldi að aukast segir löggan
Samkvæmt fréttum RUV í morgun er ofbeldi að aukast. Hvernig ætli standi á því? Við höfum nú tölvuert rætt um áhrif kláms á kynferðisofbeldi... og einnig að tengslin eru ekki einföld heldur flókin og sambland af fleiri þáttum. Sú ofbeldisdýrskun sem tröllríður samfélaginu hlýtur að hafa einhver áhrif. Hvað er það annars sem heldur okkur "innan marka", ef svo má að orði komast? Jú, það er einmitt siðferðið, lögin og þau gildi að vilja ekki meiða eða skaða aðra. Því miður er ofbeldi nátengt sumum karlmennskuímyndum nútímans (og svona til að árétta fyrir þá sem ekki ennþá skilja... þá eru orðin karlmaður, karlmennska og karlmennskuímynd ekki samheiti).
Ofbeldisdýrkun er haldið að karlmönnum, hvort sem það er í gegnum leikföng, öskudagsbúninga, ofurhetjur, action myndir, ævintýri, tölvuleiki og fleira í þeim dúr. Þetta hlýtur að hafa áhrif. Að sama skapi er ekki ólíkegt að ofbeldi kvenna aukist þegar áherslan er á að konur eigi að taka upp karlmennskuímyndir til að vera töff... Það ætti líka að vera kommon sense...
Besta leiðin til að berjast gegn ofbeldi er að hafna ofbeldi og ofbeldisdýrkun... held samt að við séum allt of sjálfhverf sem samfélag til að vera fær um það!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.5.2007 | 22:10
Gott gaman að lítillækka konur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
28.5.2007 | 14:17
Kolefnisjöfnun, endurvinnsla og neysla
Það verður að segjast eins og er að við erum ekkert sérstaklega umhverfisvæn á þessu heimili. Við erum jú vissulega hætt að henda dagblöðum og því gífurlega magni af ruslpósti sem berst inn á heimilið og uppi eru fögur fyrirheit um að ná að endurvinna mun meira af því rusli sem til fellur. Eins höfum við breytt innkaupum að einhverju leyti og erum meðvituð um halda keyrslu á einkabílnum innan einhverra marka... Og svo höfum við auðvitað hjólað einu sinni í vinnuna!
En betur má ef duga skal. Við höfum aðeins velt fyrir okkur kolefnisjöfnuninni sem mikið er auglýst og talað um þessa dagana. Það hefur verið tvennt sem við höfum verið að spekúlera í því sambandi. Annars vegar að það væri nú eiginlega skynsamlegra að verja fé í uppbyggingu regnskóga, allavega að hluta til, og hins vegar hvort að kolefnisjöfnun yrði notuð sem afsökun til að draga ekki úr mengun. Rétt í þessu kíkti ég á heimasíðu Kolviðs, sem er fyrirtækið sem heldur utan um kolefnisjöfnunina og fjárfestir í skógrækt. Mér til mikillar gleði er báðum þessum spurningum svarað þar. Lögð er áhersla á að fólk átti sig á að það þarf að draga úr mengun samhliða því að byggja upp. Eins er tekið fram að í framtíðinni standi til að fjárfesta í sjóðum og taka þannig þátt í verkefnum varðandi uppbyggingu regnskóga.
En betur má ef duga skal. Heimasíða Sorpu er mjög fróðleg og gagnleg fyrir þau sem eru í endurvinnsluhugleiðingum. Svo er þetta sniðugt verkefni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
27.5.2007 | 20:52
Hamingjuóskir óskast
Á föstudaginn hjóluðum við í vinnuna og aftur heim. Mér reiknast svo til að ég hafi hjólað í 2 klst og 43 mínútur. Tekið er á móti hamingjuóskum í kommentakerfinu...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
25.5.2007 | 11:42
Sirkús á Broadway
Eftirfarandi pistill birtist í Viðskiptablaðinu síðastliðinn miðvikudag. Set hann hér inn í tilefni dagsins.
Sirkús á Broadway
Sóley Tómasdóttir birti nýlega á blogginu sínu samantekt yfir kynjahlutföll í Silfri Egils í vetur. Það kemur væntanlega fáum á óvart að meirihluti viðmælenda Egils voru karlar, eða rúmlega 70%. Í athugasemd við innleggið stakk Hafrún Kristjánsdóttir upp á því að Sóley horfði á Ungfrú Ísland keppnina til að jafna kynjahlutföllin. Ég held að Hafrún hafi hitt naglann betur á höfuðið en hún ætlaði með þessari athugasemd.
Hann fékk bók en hún fékk nál og tvinna
Kynjahlutverkin í gegnum tíðina hafa verið mjög skýr. Hefðbundið hlutverk karlmanna var að vera fyrirvinna og taka þátt í pólitík. Opinbera svæðið var þeirra. Staður konunnar hins vegar var á heimilinu. Hún átti að sjá um uppeldi barnanna og halda sér vel til fyrir karlinn. Í dag hefur staðan breyst að hluta til. Konur eru í meirihluta þeirra sem sækja háskólanám, tiltölulega lítill munur er á
atvinnuþátttöku karla og kvenna.
Upphaflega sirkussýning
Kynin eru hins vegar langt frá því að sitja við sama borð þegar kemur að lýðræðislegri þátttöku. Á meðan strákarnir karpa í Silfri Egils, eru um 70% þingmanna og meirihluti fjölmiðlaumfjöllunar er um karla, þá eru fegurðarsamkeppnir sagðar ala af sér konur sem eru æðstu fyrirmyndir ungra stúlkna. Nokkuð merkilegt í ljósi uppruna konusýninga. Í bók Sæunnar Ólafsdóttur um fegurðarsamkeppnir á
Íslandi, Brosað gegnum tárin, kemur fram að upprunann í hinum vestræna heimi megi rekja til sirkusstjóra sem hafði á dagskrá hunda-, fugla- og blómasýningar. Við þessa flóru vildi hann bæta konusýningum.
Atvinnutækifæri
Miðað við ójafna stöðu kynjanna í lýðræðislegri þátttöku er einkennilegt að sjá fegurðarsamkeppnum hampað. Það er eins og einhver firring sé í gangi varðandi á hvaða forsendum kynin eigi að njóta framgöngu. Sumir sem mótmæla að settir séu kynjakvótar á lýðræðislega ákvarðanatöku finnst ekkert athugavert við að konur öðlist frægð og atvinnutækifæri út á að vera tilbúnar til að tipla fyrir framan dómnefnd á bikiníi og háum hælum í þeim tilgangi að hægt sé að meta líkama þeirra
til einkunna.
Góð auglýsing?
Enn furðulegra er að sjá að fyrirtæki eru tilbúin til að leggja nafn sitt við keppnina og leggja þar með blessun sína yfir fyrirbærið. Samt er vitað að fegurðarsamkeppnir eru umdeildar og mörgum finnst þær í besta falli hallærislegar. Það er kannski skiljanlegt að fyrirtæki sem starfa í bjútí bransanum séu styrktaraðilar en hvað með fyrirtæki eins og Lýsi, KEA, Pennann og Hátækni? Hvernig
samræmist þátttaka í konusýningum starfsemi þessara fyrirtækja? Eigum við kannski von á að sjá atvinnuauglýsingu bráðlega frá Pennanum þar sem auglýst er eftir ungri konu til að skreyta sófa í húsgagnadeildinni? Eða Hátækni að auglýsa eftir ungri konu sem fylgihlut við gsm síma? Lýsi hf. sem leggur upp með að lýsi sé gott fyrir heilsuna styrkir keppni sem gengur út á að steypa allar konur í sama mót og kenna þeim að það sé hræðilegur glæpur að vera í kjörþyngd. Keppnin vill hafa á sér ímynd hreystis en af hverju eru þá KFC og áfengistegundir leyfð sem styrktaraðilar? Sumar
stúlknanna hafa ekki náð löglegum drykkjaraldri en eru engu að síður notaðar til að selja áfengi. Er það til fyrirmyndar?
Samfélagsleg ábyrgð
Okkar samfélagslega ábyrgð felur í sér að meta manneskjuna að verðleikum og veita öllum sömu tækifæri óháð kyni, kynhneigð, uppruna, trúarbrögðum o.s.frv. Að ala stúlkur upp í að þeirra æðsta takmark sé að vera orðin fyrrverandi fegurðardrottning við 23 ára aldur og að virði þeirra og tækifæri í lífinu felist í útlitinu er ekki líklegt til árangurs við að jafna lýðræðislega þátttöku kynjanna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
24.5.2007 | 10:50
Ofbeldi karla gegn konum
Svona í sannleika sagt þá finnst mér að karlmenn eigi að gera þetta mál að sínu og útrýma svona tölvuleikjum. Hér koma stundum karlmenn og kvarta yfir því að þeirra kyn sé gagnrýnt. Okkur konunum er sagt að við eigum að treysta karlmönnum. Ekki virðist samt vera gerð krafa um að traustið sé byggt á einhverju áþreifanlegu - eins og að geta stólað á að karlmenn fordæmi svona tölvuleiki og hatur gegn konum. Karlar hljóta að átta sig á því að ef þeir "skemmta" sér við tölvuleiki sem þessa þá geta þeir ekki litið framan í okkur konurnar kinnroðalaust og sagt að þeim þyki vænt um konur og séu á móti öllu ofbeldi gegn konum. Ef að karlkynið ætlar að skemmta sér við að beita hitt því versta ofbeldi sem hægt er þá hefur það auðvitað áhrif á samskipti kynjanna - segir sig sjálft.
Fyrir þá sem ekki skilja af hverju mætti prófa að setja þetta upp fyrir aðra hópa. Hvað ef til væru tölvuleikir þar sem hvítir menn skemmta sér við að elta uppi svertingja og hengja þá? Hvað ef vinsælir tölvuleikir fælust í því að gagnkynhneigðir karlmenn eltu uppi samkynhneigða karlmenn og lemdu þá? Hvað ef kristnir menn eltu uppi múslima og sprengdu þá? Flestir átta sig á að þegar einn hópur gerir svona gagnvart öðrum hóp þá er um hate-speach að ræða. Karlmenn, hvort sem þeir eru hlynntir nauðgunartölvuleikjum eða ekki, eiga hagsmuna að gæta því útbreiðsla og vinsældir svona leiks hefur áhrif á viðhorf til karlkynsins sem hóps.
Ég hef spurt áður hvort að það sé kvenmannsverk að verja heiður karlmanna. Ég segi nei... að karlmenn verða að taka þátt í umræðunni í meira mæli til að segja til um hvernig viðhorf þeir hafa til kvenna. Í því felst líka að gagnrýna og stöðva þá karlmenn sem vilja skemmta sér við að beita konur kynferðislegu ofbeldi.
Nauðgunarþjálfun á Netinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (84)
23.5.2007 | 23:24
Falleg orð
Mér finnst jafnréttiskafli stjórnarsáttmálans afskaplega falleg orð á pappír. Kannski er ég bara orðin svona skeptísk á stjórnvöld en ég trúi í alvörunni að það sé einstaklingurinn sem skiptir máli í þessu samhengi. Einstaklingur sem er femínisti og hefur einarðan vilja til að gera jafnrétti að veruleika getur gert kraftaverk! Einn einstaklingur má sín hins vegar lítils gegn fjöldanum. Þess vegna verða að vera sem flestir femínistar í ríkisstjórn. Ég hef ágæta trú á að Jóhanna muni vera eins og ferskur stormsveipur í félagsmálaráðuneytinu. Ég á líka von á því að Ingibjörg leggi áherslu á jafnréttisstarf. Þessir einstaklingar skipta meira máli en fallegu, mildu orðin á pappírnum. Stjórnarsáttmálin er of almennt orðaður að mínu mati. Ég heyrði Guðfinnu Bjarnadóttur segja að hún hefði gert þetta nákvæmlega svona ef hún hefði verið í þessum sporum. Jamm, þetta eru svo sem í anda ágætra fræða... en hins vegar allt of mikið af "way out" í þessu. Þ.e. stefnt skal að öllu... stefnt að jöfnum kynjahlutföllum... stefnt að því að minnka launamun. Og hvað ef það tekst ekki? Jú, þetta var bara stefna... Með öðrum orðum það eru innbyggðar afsakanir fyrir að takast ekki ætlunarverkið í stefnunni. Stefnan er ekki afdráttarlaus og hún vekur ekki traust um að þessir hlutir verði framkvæmdir í reynd. Það veltur á einstaklingunum... og samheldni þeirra sem eru með jafnréttinu.
Ég hafði gaman af að hlusta á Kolbrúnu og Guðfinnu takast á í Kastljósinu. Var glöð að heyra að Guðfinna kom með yfirlýsingu um að hún hefði sótt fast að fá ráðherraembættið. Var ekki eins glöð að heyra að hún talaði um þessa sterku einstaklinga sem hefðu raðast í ríkisstjórnina án þess að lýsa því yfir að konurnar í Sjálfstæðisflokknum væru hundfúlar. Hún kinkaði samt kolli og brosti þegar Kolbrún sagði að þetta væri mismunun á grundvelli kyns. Það er nefnilega það sem þetta er. Kyn réð meiru en hæfni við valið. Ég bíð enn eftir þeim degi þegar konurnar í Sjálfstæðisflokknum ákveða að standa undir nafni sem SJÁLFSTÆÐAR konur og átta sig á að yfir flokknum ríkir Geir formaður en ekki Maó formaður. Það þýðir að þær mega segjast vera hundfúlar. Er það ekki?
Ingibjörg var líka mjög góð. Fannst Helgi ganga fulllangt varðandi lista hinna staðföstu þjóða. Held það sé tiltölulega einfalt að sjá það út að það sé ekki sjens að fá Sjálfstæðisflokkinn til að kvitta upp á mistök í liðinni tíð. Það er nokkuð gott að fá þá til að samþykkja að harma stríðið... eins og það ætti nú að vera sjálfsagt mál...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.5.2007 | 10:10
Áhugaverður fyrirlestur
Rannsóknasetur í barna og fjölskylduvernd (RBF) og Félagsráðgjafafélag Íslands (FÍ) bjóða til opins fyrirlesturs miðvikudaginn 23. maí kl. 12.00-13.00, í Odda, stofu 101.
Í fyrirlestri sínum mun David L. Burton fjalla um rannsóknir sínar á klámi og gerendum kynferðislegs ofbeldis og tengja það við rannsóknartengdar starfsaðferðir í félagsráðgjöf (research-based practice). David L. Burton hefur mikla reynslu af rannsóknum, kennslu og meðferðarþjálfun í Bandaríkjunum og víðar. Hann kemur hingað til lands í tengslum við ráðstefnuna Forvarnir eru besta leiðin í boði Háskólans í Reykavík og Blátt Áfram hópsins.
Milli kl. 11.30 og 12.00, verður léttur málsverður (samlokur o.fl) í boði fyrir gesti. Allir velkomir
Staður: Oddi, stofa 101
Vefslóð: www.rbf.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.5.2007 | 00:00
Kyn umfram hæfni
Vona að karlkyns ráðherrar Sjálfstæðisflokksins séu sáttir við að hafa fengið ráðherrastól í krafti kyns en ekki hæfni. Geri hins vegar fastlega ráð fyrir að þeir sem vildu komast áfram á eigin verðleikum séu örlítið niðurlútir yfir að vita að þeir voru teknir fram fyrir hæfari konur og að það var kynið sem hafði úrslitaáhrifin.
Mikið asskoti passar ráðherravalið vel inn í hugtakið hans Sigurðar Guðmundssonar myndlistarmanns um andlega samkynhneigð karla.
Þrjár konur og þrír karlar ráðherrar fyrir Samfylkingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (48)
22.5.2007 | 17:36
Sannleikan eða kontor?
Ég held að það sé of sárt fyrir suma karlmenn að horfast í augu við það að sumar stöður myndu þeir ekki fá ef þeir væru nákvæmlega sama manneskjan en bara af hinu kyninu. Held líka að það sé sumum um megn svo mikið sem íhuga að sá möguleiki sé fyrir hendi.
Svo er talað um að kvótar séu slæmir af því að það væri svo niðurlægjandi fyrir konurnar að vita að þær væru í sínum stöðum af því að þær eru konur... Málið með kvóta er hins vegar að þeir hleypa hæfu konunum að... og koma í veg fyrir að of margir karlar séu ráðnir út af kynferðinu einu saman. Þetta segi ég án þess að vera sérstaklega hlynnt kvóta. Lít á kvóta sem síðasta úrræðið... verst að samfélagið er bara ennþá svo fjári hallt undir misréttið!
Jafnrétti kynjanna í 100 stærstu fyrirtækjum landsins ábótavant | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Tenglar
Félög og fleira
- Femínistafélag Íslands Uppáhaldsfélagið
- Kynjafræði HÍ
- RIKK
- the f-word
- Bríet
- Kvenréttindafélagið
- Kvennasögusafn
- Femínistafélag Akureyrar
- Ungfemínistar
- Kvennaslóðir
- http://
Í uppáhaldi
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nota bene
Stopp
Stopp
Spurt er
Bloggvinir
- konur
- soley
- vglilja
- salvor
- andreaolafs
- kristinast
- thelmaasdisar
- ingibjorgelsa
- truno
- bryndisisfold
- vefritid
- poppoli
- hlynurh
- margretsverris
- annapala
- hafmeyja
- ugla
- halla-ksi
- kamilla
- ingibjorgstefans
- feministi
- stebbifr
- hrannarb
- aas
- bjorkv
- ibbasig
- ingo
- matthildurh
- emmus
- svartfugl
- gattin
- saedis
- gurrihar
- afi
- kennari
- eddaagn
- steindorgretar
- fanney
- brisso
- gudfinnur
- rungis
- 730
- killerjoe
- kosningar
- id
- orri
- kjoneden
- halkatla
- vilborgo
- tommi
- jenfo
- tryggvih
- heiddal
- almapalma
- hrafnaspark
- fletcher
- klaralitla
- lauola
- maple123
- ruthasdisar
- alfholl
- heidathord
- siggisig
- kjarninn
- bjorgvinr
- ingolfurasgeirjohannesson
- paul
- arh
- bleikaeldingin
- astamoller
- bene
- bergruniris
- hrolfur
- hrafnhildurolof
- temsaman
- oskvil
- handsprengja
- baddinn
- begga
- abg
- elvabjork
- lks
- super
- athena
- perlaheim
- thorak
- hallarut
- malacai
- almaogfreyja
- volcanogirl
- sabroe
- astan
- bjargandiislandi
- rustikus
- evags
- sannleikur
- zeriaph
- hildurhelgas
- drum
- minos
- kerla
- stjaniloga
- larahanna
- lotta
- mariataria
- manisvans
- sigurjonsigurdsson
- joklasol
- snj
- saethorhelgi
- tara
- toshiki
- sverdkottur
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- thorsteinnhelgi
- thuridurbjorg