Útibú???

Hjó eftir því í þessari frétt að fjallað er um útibú MP banka - ekki dótturfélag. Getur verið að íslenskir bankar séu enn í dag með útibú í öðrum löndum og íslenska ríkisábyrgð á bak við allt saman? Á heimasíðu MP banka segir að útibúið veiti:

fjárfestum í Eystrasaltsríkjunum og á Norðurlöndunum fjármálaþjónustu með áherslu á fjárfestingar á fjármálamörkuðum í Austur-Evrópu.

Ekkert er talað um innlán og ég hef ekki hugmynd um hvernig ríkisábyrgð gildir fyrir þetta útibú. Hins vegar er ágætt að hafa í huga að MP banki fékk nýlega viðskiptabankaleyfi hér á landi. Í öllu falli þætti mér gott að fá meiri upplýsingar um þetta. Ef í ljós kemur að á bak við útibúið er íslensk ríkisábyrgð þá verður að bregðast við því. 


mbl.is MP hefur brugðist við athugasemdum frá Litháen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

Mér hefur nú flogið í hug að innistæður á Íslandi í MP séu til þess ætlaðar að bjarga tapi á útibúinu í Litháen.  Bankar eru í stórvandfræðum þar, m.a. annars er vandi sænskra banka rakinn til starfssemi þeirra í Eystrasaltsríkjum.

Auðun Gíslason, 9.7.2009 kl. 14:12

2 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Sammála þér Katrín,ef þetta útibú sé á ábyrð íslensku þjóðarinnar,þá gerum við þá kröfu að þessum reglum sé breytt í hvelli,nú ætti þeir hjá fjármálaeftirlitinu að vinna sína vinnu sem þeir unnu ekki árið 2006 til 2008 eigilega ættu þeir að vinna hana kauplaust upp í vinnusvik og klúður varðandi landsbankann,Glitnir og kaupþing,þeir hljóta að geta tekið þá menn sem eru í því að dunda sér í vinnu á okkar launum að finna út hvar lekinn væri til DV,þeim væri nær að stoppa þetta gat strax,ef það kemur í ljós að þarna sé þetta á okkar ábyrg,en kannski vinna þeir svo hratt og leynt,að þeir séu búnir að loka fyrir þetta gat,en þjóðin viti ekki af því,ef það sé reyndin:þá bið ég þá afsökunar á þessum orðum,en ef ekki þá segi ég bara skammist ykkar. kær kveðja. konungur þjóðveganna.

Jóhannes Guðnason, 9.7.2009 kl. 15:20

3 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Svo innilega sammála það er náttúrlega gjörsamlega óþolandi ef minnsti möguleiki sé á því að íslenskir bankar skuli ennþá vera í einhverskonar útrás er nú ekki nóg komið af sukkinu ???

Hulda Haraldsdóttir, 9.7.2009 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Anna Guðmundsdóttir
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Femínisti og fleira
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband