Færsluflokkur: Bloggar
22.5.2007 | 14:14
Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn?
Jæja, stefnir í að Samfylkingin standi við kosningaloforðið um jafna skiptingu kynja í ráðherraembætti. Þá er bara að bíða og sjá hvað Sjálfstæðisflokkurinn gerir. Þeim er varla stætt á öðru en að hafa að hlutfall kvenna í samræmi við hlutfall kvenþingmanna - sem er þriðjungur. En það er aldrei að vita þegar Sjálfstæðisflokkurinn á í hlut. Hins vegar gæti flokkurinn komið þægilega á óvart og fylgt Samfylkingunni í jafnri skiptingu ráðherra. Það yrði saga til næsta bæjar Ekki að ég reikni með slíkri þriðjudagsgjöf... giska á 2 konur og 4 karla í þeirra ráðherraliði.
Svo er aldrei að vita nema ráðherrum verði fækkað og báðir flokkar verði með 3 karla og 2 konur...
Ingibjörg Sólrún: Skipting kynja í ráðherraembættum jöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.5.2007 | 09:33
Hin árlega konusýning
Hin árlega konusýning þar sem konur á aldrinum 18 - 24 ára trítla um á bikiní og háhæluðum skóm svo hægt sé að vega og meta virði þeirra út frá líkamlegum eiginlegum verður á föstudaginn. Af því tilefni set ég hér inn 2 tengla af bloggsíðum sem staðalímyndahópur Femínistafélagsins var með í tengslum við 2 slíkar sýningar árið 2004:
http://www.missiceland.blogspot.com/
Skrifa meira seinna... og svara þá spurningunni um styrktaraðilana og boycottið...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
21.5.2007 | 23:40
Ég er svört kona frá Afríku
Ég er afskaplega hlynnt því að RUV gegni því hlutverki að vera sú sjónvarpsstöð sem sýnir menningarlegt efni, íslenska framleiðsu og heimildarmyndir. Einkareknar stöðvar geta svo séð um allt braindead efnið sem eftirspurnin er eftir. Hins vegar virðist RUV ekki alltaf vanda valið á hvaða menningaefni er sýnt. Ég hef stundum furðað mig á vali heimildarmyndaþáttum sem er kynnt sem "vandað" efni frá BBC - en svo kemur í ljós að um einhverja eðlishyggjuþætti er að ræða um uppruna mannsins og hvers vegna konur eigi að vera undirgefna kynið. Ég held samt að þátturinn í kvöld hafi slegið öll met. Ég missti af byrjuninni - og ég efast ekki um að þar hafi verið kynntar ástæður þess að konur teljast ekki með - en kannski getur einhver sagt frá því í kommentakerfinu.
Allavega. Þátturinn fjallar um hinn vísindalega Adam. Manninn sem allir karlmenn jarðarinnar eiga rætur sínar að rekja til. Í raun má segja að þátturinn hafi verið karlafantasía frá upphafi til enda... þar sem einn vísindamaður taldi sig hafa sannað það að allir karlmenn heimsins hafi sama stökkbreytta erfðaefnið í Y litningnum og að það sanni að þeir eigi þennan sameiginlega forföður. Hann átti víst að vera fyrsti maðurinn sem gat hugsað af viti, veitt af viti og talað af viti. Svo sannarlega eini maðurinn með viti á þeim tíma... sem gerði kellurnar alveg óðar í hann og þess vegna átti hann miklu fleiri börn en allir hinir. Þó það hafi verið fleiri menn til á þessum tíma þá voru þeir ekki svona yfirburðamenn eins og Adam - svo þeir dóu bara út - eða eignuðust engin börn - eða bara dætur! Og það telst auðvitað ekki með að eignast bara dætur sem afkomendur... Mannkynið er að sjálfsögðu ekki komið af konum enda vita allir heilvita menn að konur eignast ekki börn!
Þátturinn var ekki síst skemmtilegur fyrir þá sem hafa gaman af alhæfingum og langsóttum fantasíum um sinn eigin uppruna. Ekki nóg með að hægt sé að rekja alla karla til þessa eina manns sem var uppi fyrir ca 40 þúsund árum eða svo... þá var líka hægt að búa til mynd af því hvernig hann leit út. Það var gert með því að finna hauskúpu frá ca þeim tíma sem hann var uppi og svo hauskúpu af einhverjum karlmanni sem býr á svipuðum slóðum og Adam á að hafa búið á. Niðurstaðan auðvitað raunsönn mynd af hvernig Adam leit út... Og auðvitað afskaplega erfitt að afsanna nema einhver finni mynd af honum.
Eina sem var skemmtilegt í myndinni var að Adam var svartur. Get ekki neitað að mér finnst það gott á alla rasistana
Svo ég komi nú með kynjavinkilinn í lokin, svona fyrir þá sem eru ekki búnir að fatta hann... hvaða konu ætli dytti í hug að tala um uppruna mannkyns og tala bara um konur og láta eins og karlar hefðu ekki verið til í gjörvallri mannkynssögunni? Hverjum dytti í hug að fjármagna svoleiðis þátt? Hvaða ríkissjónvarpi dytti í hug að sýna svoleiðis þátt? Og hver í ósöpunum myndi líta á svoleiðis sem alvöru vísindi???
Bloggar | Breytt 22.5.2007 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
21.5.2007 | 12:47
Baráttan gegn kynferðisofbeldi
Ég er ein af þeim sem er sannfærð um að klámið og klámvæðingin stuðlar að fjölgun kynferðisbrotamanna, enda er klámið yfirgengilega fullt af ofbeldi og niðurlægingu sem á ekkert skylt við kynlíf eða kynfrelsi. Sem betur fer eru til samtök eins og Stígamót og fleiri sem berjast gegn þessu af alefli og sem bjóða þolendum aðstoð við að glíma við eftirköstin.
Það sem hefur breyst frá því að byrjað var opinberlega að tala um kynferðisofbeldi fyrir ca 20 árum er að úrræði fyrir þolendur hafa aukist, umræðan er opnari og vitundin er meiri. Réttarkerfið er hins vegar ennþá í algjörum lamasessi og ekkert hefur gengið í að draga úr brotunum. Ýmislegt virðist benda til þess að ofbeldið sé að aukast, það er að verða ofbeldisfyllra og sumar framtíðarspár segja að þetta eigi bara eftir að halda áfram að aukast enn meira. Það þarf eitthvað stórt að gerast til að hægt sé að minnka ofbeldið. Eitt af því mikilvægasta er að efla og bæta virðingu á milli kynja. Strákar eiga ekki að alast upp við þá kröfu að þeir eigi að vera fremri stelpum heldur að kynin standi jafnfætis og séu jafn merkileg. Á meðan það þykir flott að vera strákastelpa en niðurlægjandi að vera stelpustrákur þá er augljóst hvert viðhorfið er. Þessi krafa um yfirburði er líka fáránleg vegna þess að lang flestir átta sig á að strákar og stelpur eru fyllilega jafn hæf og þá verður ansi erfitt að standa undir þessum kröfum. Sumir eru síðan svo vitlausir að til að standa undir nafni sem valdameiri að þá beita þeir ofbeldi til að ná sínu fram. Því miður beinist áróðurinn og skilaboðin sjaldnast að þessum hópi. Hvernig væri t.d. að setja á laggirnar herferð sem hvetti nauðgara og kynferðisofbeldismenn til að viðurkenna brot sín fyrir rétti og taka út sína refsingu eins og réttarkerfið kveður á um? Yfirgnæfandi meirihluti kynferðisbrotamanna neitar nefnilega að viðurkenna brot sín og gera þar með þolandum enn erfiðara um vik að vinna úr sínum málum.
En... ofangreint dílar við það sem gerist eftir að búið er að fremja brotið. Forvarnir geta m.a. falist í því að berjast gegn þeim skilaboðum sem klámið selur.
Stöðugt fleiri leita aðstoðar Stígamóta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (39)
21.5.2007 | 10:17
Ný skoðanakönnun
Er búin að setja inn nýja skoðanakönnun um hvaða flokki fólki finnist ég ætti að verða virk í eftir að mínu hlutverki sem þverpólitísk talskona lýkur... Tek fram að ég mun að sjálfsögðu "make up my own mind"... og velja eftir pólitískri sannfæringu! Engu að síður væri gaman að sjá hvar í flokki fólk telur að ég eigi heima...
Set hérna inn niðurstöðurnar úr síðustu könnun - sem var reyndar 2. Annars vegar hvort að karlar megi segja "konur eru konum verstar?" og hins vegar hvort konur megi segja "karlar eru konum verstir?". Þar kemur fram skýr kynjamunur þar sem ca 50% segja að konum sé leyfilegt að viðhafa síðara frasann en aftur á móti eru 80% á því að körlum leyfist að segja það sama um konur. Niðurstaðan í þessari einstaklega marktæku netkönnun er sem sagt sú að körlunum leyfist meira...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.5.2007 | 09:47
Snjókoma
Seinni partinn í gær fengum við þá snilldarhugmynd að í dag væri skynsamlegt fyrir okkur að hjóla saman í vinnuna. Höfum aldrei áður hjólað í vinnuna svo þetta hefði verið nokkurs konar könnunarleiðangur líka til að athuga hversu greið leiðin er... og hvort við myndum villast! Svo komumst við að því að veðurspáin fyrir daginn í dag væri rigning og smá vindur. Ætluðum því að sjá til hvernig útlitið væri þegar við færum á fætur. Tveim klukkustundum síðar kom haglél og snjókoma. Núna snjóar fyrir utan gluggan hjá mér. Þarf að taka það fram að við fórum ekkert hjólandi? Ég neita hins vegar alfarið að taka ábyrgð á snjókomunni... þó ég hafi ætlað að hjóla!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.5.2007 | 21:09
Ófjölskylduvænt
Fundur stendur enn yfir á Þingvöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.5.2007 | 14:50
Frelsi hverra?
Í baráttunni fyrir klámi eru oft notuð þau rök að fólki eigi að vera frjálst að velja að horfa á klám. Þessir sömu aðilar vilja hinsa vegar hunsa rétt þeirra sem vilja ekki sjá klám... Nú hefur Google bæst í hópinn og é sé ekki betur en að þau sem nota myndaleitina á Google megi eiga von á því að þar muni klámmyndir birtast ásamt öðrum myndum. Augljóslega er ekki hægt að nota rökin um að fólk hafi frelsi til að velja sig frá kláminu í þessu. Ekki frekar heldur en að fólk hafi frelsi til að velja sig frá kláminu í flestum bókabúðum þar sem klámblöðum með hlutgerðum og útglenntum sílikonum er still upp í blaðarekkanum, og stundum hjá kassanum. Fyrir utan frelsi fullorðinna til að velja sig frá þá þarf líka að hugsa um börnin. Börnin eru ekki varin fyrir klámi heldur er því troðið upp á þau víða í opinberu rými. Ekki þarf að líta lengra en til kassa sumra matvöruverslana sem klessa klámblaðinu Bleikt og Blátt á kassann hjá sér.
Hið sýnilega klám í opinberu rými er yfirleitt af konum. Það er bara staðreynd að konur fara ekki svona illa með karla eins og karlar gera með konur í gegnum klámið. Hommaklámið er síðan vel falið augum hins gagnkynhneigða karlmanns... sem virðist bara vera "frjálslyndur" í hugsun þegar kemur að hlutgerðum og niðurlægðum konum í klámi en ekki körlum.
Klám hefur slæm áhrif á margar konur og gerir það að verkum að þeim líður illa. Með því að klístra klámi út um allt í opinberu rými er í raun verið að búa til umhverfi sem er fjandsamlegt konum. Það getur haft þau áhrif að konur forðast þessi svæði. Þetta er með öðrum orðum enn ein birtingarmynd á samfélagi sem sniðið er að "þörfum" karla og raunveruleiki og líðan kvenna hunsaðar. Konur skulu aðlaga sig að hinum karllæga veruleika og því sem karlar vilja eða bara halda sig heima...
Google leyfilegt að birta smámyndir klámsíðna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
19.5.2007 | 16:18
Gott að fá stefnu
Vissulega hef ég ekki lært neitt í skipulagsfræði... en ég skil ekki af hverju verið er að reisa öll þessi háhýsi í miðbænum. Skringilegast finnst mér að þau eru niður við sjó og loka á útsýnið fyrir alla þá sem fyrir innan eru. Einhvern veginn finnst mér meira vit í að hafa háhýsin innar þannig að þau loki sem minnst á útsýni annarra... en það er bara ég. Ef einhver getur útskýrt hvaða vit er í þessum háhýsum fyrir aðra en íbúa háhýsanna sem fá þetta dásamlega útsýni yfir sjóinn og Esjuna þá endilega be my guest.
Styð að það verði gerð hérna háhýsastefna! Veitir ekki af.
Háhýsastefna í mótun í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.5.2007 | 13:28
Ekki einn algildur sannleikur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Tenglar
Félög og fleira
- Femínistafélag Íslands Uppáhaldsfélagið
- Kynjafræði HÍ
- RIKK
- the f-word
- Bríet
- Kvenréttindafélagið
- Kvennasögusafn
- Femínistafélag Akureyrar
- Ungfemínistar
- Kvennaslóðir
- http://
Í uppáhaldi
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 332768
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nota bene
Stopp
Stopp
Spurt er
Bloggvinir
- konur
- soley
- vglilja
- salvor
- andreaolafs
- kristinast
- thelmaasdisar
- ingibjorgelsa
- truno
- bryndisisfold
- vefritid
- poppoli
- hlynurh
- margretsverris
- annapala
- hafmeyja
- ugla
- halla-ksi
- kamilla
- ingibjorgstefans
- feministi
- stebbifr
- hrannarb
- aas
- bjorkv
- ibbasig
- ingo
- matthildurh
- emmus
- svartfugl
- gattin
- saedis
- gurrihar
- afi
- kennari
- eddaagn
- steindorgretar
- fanney
- brisso
- gudfinnur
- rungis
- 730
- killerjoe
- kosningar
- id
- orri
- kjoneden
- halkatla
- vilborgo
- tommi
- jenfo
- tryggvih
- heiddal
- almapalma
- hrafnaspark
- fletcher
- klaralitla
- lauola
- maple123
- ruthasdisar
- alfholl
- heidathord
- siggisig
- kjarninn
- bjorgvinr
- ingolfurasgeirjohannesson
- paul
- arh
- bleikaeldingin
- astamoller
- bene
- bergruniris
- hrolfur
- hrafnhildurolof
- temsaman
- oskvil
- handsprengja
- baddinn
- begga
- abg
- elvabjork
- lks
- super
- athena
- perlaheim
- thorak
- hallarut
- malacai
- almaogfreyja
- volcanogirl
- sabroe
- astan
- bjargandiislandi
- rustikus
- evags
- sannleikur
- zeriaph
- hildurhelgas
- drum
- minos
- kerla
- stjaniloga
- larahanna
- lotta
- mariataria
- manisvans
- sigurjonsigurdsson
- joklasol
- snj
- saethorhelgi
- tara
- toshiki
- sverdkottur
- ver-mordingjar
- tharfagreinir
- thorsteinnhelgi
- thuridurbjorg