Færsluflokkur: Bloggar
2.5.2007 | 23:36
1979


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2007 | 10:38
Þjóðráð

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.5.2007 | 19:18
Já takk
Starfslokasamningur Bjarna Ármannssonar, sem lét af störfum sem forstjóri Glitnis í gær, hljóðar rúmar 800 miljónir króna eftir því hvernig söluverð hlutabréfa er reiknað. Þetta eru líklega hæstu upphæðir sem greiddar hafa verið við starfslok hér á landi.
(heimild ruv.is)
Ef einhver er til í að borga mér svona mikinn pening fyrir að hætta að vinna þá er ég geim! En auðvitað er auðséð að Bjarni á þetta alveg skilið og ekki er hægt að skilja hann eftir á flæðskeri staddan. Ég meina, hann er nú 4 barna faðir og allt það... Og greyið hvað hann á nú bágt fyrst að bankinn er til í að borga honum svona mikið til að losna við hann. Vona að hann upplifi ekki geðveika höfnunartilfinningu!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
1.5.2007 | 18:45
Kæra dagbók
Dagurinn hófst formlega klukkan 11 þegar ég skellti mér inn á Kaffi Roma á Rauðarárstígnum og keypti mér kaffi og rúnstykki. Stuttu seinna tíndust hinir ýmsu meðlimir úr ráðinu inn á fundinn og við tók mikill blöðrublástur. Ég veit ekki alveg hvað við blésum í margar blöðrur en við giskum á að það sé á bilinu 200-300, ásamt því að festa þær á prik og skrifa á þær slagorð. Við dreifðum svo blöðrunum til kröfufólks í 1. maí göngunni.... og marseruðum niður Laugaveginn með skiltin okkar, þar á meðal plan b sem var útbúið í nótt og ég er fullviss um að hafi verið kvenlegasta skiltið í göngunni!!!
Útifundurinn olli mér nokkrum heilabrotum, eða réttara sagt, umgjörð útifundanna um allt land. Ég vaknaði nefnilega við það í morgun að fluttar væru fréttir af því hverjir væru aðalræðumenn baráttufunda um landið allt. Á öllum stöðum voru aðalræðumenn karlar. Ekki ein einasta kona.... þó konur fengju nú samt að vera með ræður, bara ekki sem aðalræðumenn. Þær flokkast sem sagt ekki til stórskotaliðsins... Það er umhugsunarefni hvernig verkalýðsfélög, sem meðal annars hafa það verkefni að sjá um að ekki sé mismunað eftir kyni í launum og að kjör hefðbundinna kvennastarfa séu hífð upp til að jafnast á við laun hefðbundinna karlastarfa, geti leyft sér að hafa eingöngu annað kynið í forsvari! Grétar Már, sem var aðalræðumaðurinn á Ingólfstorgi, minntist þó á launamun kynjanna sem eitt helsta baráttumálið í sinni ræðu, og er það vel.
"Skemmtiatriðin" sem boðið var upp á á Ingólfstorgi voru líka tilefni til heilabrota. Baggalútur var fenginn til að syngja um konuna sem dekrar við þá á alla hugsanlega vegu - svo mikið að "femínistabeljur eflaust súpa hveljur" og síðan var gospel kór fenginn til að flytja nokkur lög, þar á meðal lagið Höfuð, herðar, hné og tær með breyttum texta þar sem kom fram að Jesús elskar þig allann... Jamm, það þótti sem sagt bæði við hæfi að vera með karlrembusöng og kristna trúarsöngva í samfélagi þar sem barist er fyrir jafnrétti kynjanna og þar sem breyting er að verða yfir í fjölmenningarsamfélag þar sem önnur trúarbrögð heldur en kristni verða útbreiddari. Erlent verkafólk er ekki síst sá hópur sem verkalýðshreyfingin þarf virkilega að beita sér fyrir - og á að fylgja því skilyrði að kristinni trú sé troðið upp á alla??? Það á hreinlega ekki við að blanda saman trúarbrögðum og verkalýðsbaráttu á þann hátt sem gert var í dag.
Já, það var sumt skrýtið við baráttuna. Nói Siríus ákvað að nota 1. maí gönguna til að selja sælgæti... við litla hrifningu þeirra sem voru í alvöru kröfugöngu, enda ekki hægt að segja annað en að þarna sé fyrirtækið að hætta sér út á hálan ís. Það verður fróðlegt að fylgjast með umræðunni um þessa uppákomu í kjölfarið en mikið er ég hissa á hversu mörg fyrirtæki eru til í að hætta ímynd vel þekktra og verðmætra vörumerkja með fíflalátum og dómgreindarskorti þessa dagana.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.4.2007 | 18:39
Hæfasti einstaklingurinn
Fyrir tæplega 100 árum sagði Henry Ford:
Any customer can have a car painted any colour that he wants so long as it is black
Í dag virðist mottóið vera að ráða hæfasta einstaklinginn svo framarlega sem hann er karlkyns...!
Bönkunum virðist allavega ekki enn hafa tekist að hafa upp á svo mikið sem einni hæfri konu til að gegna starfi bankastjóra.
![]() |
Lárus tekur við af Bjarna sem forstjóri Glitnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
30.4.2007 | 11:20
Auglýsingar og markaðssetning
Steinunn Stefánsdóttir skrifar stórfínan leiðara í Fréttablaðið í dag um kynhlutverk í auglýsingum. Þar kemur hún meðal annars inn á zero auglýsingarnar og fermingarauglýsingarnar þar sem strákurinn er með skoðanir og stelpan er ritarinn! Ungur nemur, gamall temur er í fullu gildi...
Í kjölfar þess að lesa leiðarann var ekki annað hægt en að staldra aðeins við á bls. 28 og hugsa um tvær greinar þar. Annars vegar er Hafdís Huld að leika í auglýsingu fyrir Reyka Vodka. Auglýsingin er hálfgerð teiknimynd... Hafdís Huld leikur á móti teiknuðum hundi í auglýsingunni. Í greininni stendur: "Karakterinn sem hún leikur hlýtur að teljast nokkuð barnslegur í framkomu." Hver ætli markhópurinn fyrir Reyka Vodka sé? Að mér læðist sá grunur að verið sé að herja inn á unga markhópinn, en fyrir það hafa áfengisframleiðendur einmitt verið þekktir... beina markaðssetningu sinni að börnum og unglinum!
Fyrir neðan greinina um Hafdísi Huld og áfengisauglýsinguna er umfjöllun um væntanlegan disk frá strákunum í mínus. Forsíðuna prýðir nakin kona... frumlegt... nema nú er hún ekki í hlutverki kynlífshjálpartækisins heldur er vísað í hana sem hval en á plötuumslaginu stendur "The great northern whalekill". Ljósmyndarinn er karlkyns, hönnuðurinn er karlkyns, hljómsveitin er karlkyns... en sú sem er drepin er kvenkyns... frumlegt eða bara sama gamla sagan???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
30.4.2007 | 10:04
Bömmer
Áttu bara einn maka? Hefurðu aldrei stundað hópkynlíf? Áttu ekki kynlífsþræl? Ertu bara stökk með einn maka for life? Döhhhh bömmer!
Furða mig stundum á orðræðunni í kringum kynlíf... sérstaklega þegar fjörugt kynlíf er tengt við kynlífsþræla. Í mínum kokkabókum er það nefnilega bara alls ekkert fjör. Læt önnur atriði í greininni liggja á milli hluta og frjáls vals einstaklingins.... en því til viðbótar finnst mér samt afskaplega skrýtið að líta þannig á að 2 einstaklingar í einkvænissambandi geti alls ekki lifað fjörugu kynlífi!
![]() |
Steinaldarmenn lifðu fjörugu kynlífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
27.4.2007 | 11:23
Örlagabjartsýni
Ég vona að ég verði bráðum svo framtakssöm að segja mig úr Þjóðkirkjunni. Þetta gengur ekki lengur. Kirkjan sem á að vera í fararbroddi í mannréttindamálum er hið versta afturhald. Getur Guð ekki farið að senda kirkjunni næsta frelsara - einhvern annan en Tom Cruise samt?
Legg svo til að lögunum verði breytt svo ég minn heittelskaði getum gengið í staðfesta samvist!
**
Mæli með pistlinum hennar Þorgerðar Einars í Fréttablaðinu í dag. Tær snilld, eins og hennar er von og vísa. Þar kynnti hún til sögunnar nýyrðið örlagabjartsýni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
27.4.2007 | 10:25
Bannað
Hlustaði á Þorlák Karlsson úthúða afnámi launaleyndar á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Sumar upphrópanirnar hans voru sérlega skemmtilegar.... "sko ef við afnemum launaleynd þá kannski lækka hátt launaðar konur í launum. Já. Afnám launaleyndar getur hreinlega lækkað laun kvenna". (ekki orðrétt... en ca). Svo er stærsta syndin af öllu auðvitað að með afnámi launaleyndar að þá er ekki hægt að borga afkastamiklu og hæfu starfsmönnunum miklu, miklu meira en hinum.... Eitthvað svo skrýtið bara að þessir hæfu starfsmenn virðast vera karlmenn í yfirgnæfandi meirihluta!
Annars væri áhugavert að skoða launamun á milli karla í sama starfi innan sama fyrirtækis. Kannski það myndi virkja karla í baráttunni fyrir afnámi launaleyndar... þegar þeir komast að því að hann Siggi er með miklu hærri laun en þeir... og samt er Siggi ekkert klárari en þeir, ekki hæfari og ekki duglegri... en kannski frekari eða betri vinur stjórans kannski??? Jú, jú, stundum er Siggi eflaust klárari, duglegri, hæfari og afkastar meiru... en það sem sagt mun stuðla að verri hópanda og allt fer pottþétt til fjandans ef starfsfólki er ekki bannað að tala sín á milli um hvað það er með í laun!
Alveg afskaplega langar púkanum í mér að segja núna við atvinnurekendur "ykkur var nær!" ... en það er örugglega bannað að segja svoleiðis, eða ætti að vera bannað, rétt eins og það er bannað að banna atvinnurekendum að banna starfsmönnum að segja frá laununum sínum.
Það eru komin 46 ár síðan lög um jöfn laun fyrir sömu störf voru sett.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.4.2007 | 22:32
Hvernig ætli staðan sé hér?
Væri fróðlegt að sjá niðurstöður úr sams konar könnun hér. Man þegar ég var í BNA þá var talað um rannsóknir á því hversu margir karlmenn töldu ok að beita valdi ef þeir hefðu borgað fyrir matinn... það var ansi hátt hlutfall. Allt of hátt. Hér eymir líka eftir af öllum nauðgunarmýtunum. Get nefnt sem dæmi að á síðasta ári þegar nokkur nauðgunarmál urðu fjölmiðlamál þá þótti t.d. Morgunblaðinu ástæða til að skella því upp í fyrirsögn að í öllum tilvikum hafi konurnar verið einar á ferð. Samt á það sem er frávikið að vera frétt en ekki það sem er normið. Það hefði því mun frekar verið frétt ef konurnar hefðu ekki verið einar á ferð... því hitt er reglan. Konum er nauðgað þegar þær eru einar. Fyrirsögnin var eins og að segja að flugvélin hafi verið á lofti þegar hún hrapaði... Nú veit ég samt alveg að Mogginn meinti vel... og mörgum öðrum fjölmiðlum þótti líka ástæða til að gera mikið mál úr því að konurnar hefðu verið einar. En skilaboðin sem felast í svona eru skýr - "hvað í andskotanum eru konur að þvælast einar á ferð því þá getur þeim verið nauðgað!!!" Þarna er ábyrgðinni nefnilega að hluta til varpað yfir á konurnar, alveg burtséð frá því að á hverjum degi eru tugþúsindir kvenna einar á ferð án þess að vera nauðgað; einar með vinum sínum; einar með mökum sínum; einar með vinnufélögum sínum.
Hér er líka talað um konur sem þiggja far með ókunnugum, konur sem drekka áfengi, konur sem klæða sig á vissan hátt, tala á vissan hátt eða sofa hjá. Á Hitti sem Femínistafélagið hélt fyrir nokkrum árum lét einn fyrirlesarinn út úr sér að það skipti máli að vita hvort konu sem hefði verið nauðgað hefði sofið hjá öðrum karlmanni fyrr um kvöldið - því það sýndi að hún vílaði ekki fyrir sér að sofa hjá ókunnugum og það drægi úr trúverðugleika hennar!
Já, það er nefnilega margt óunnið hér á landi líka, sem sést líka á hinum mikla fjölda kynferðisglæpa og hversu vanbúið réttarkerfið er til að höndla þau mál... En vonandi erum við nú samt betri en Norsararnir!
![]() |
Konunum sjálfum að kenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (44)
Tenglar
Félög og fleira
- Femínistafélag Íslands Uppáhaldsfélagið
- Kynjafræði HÍ
- RIKK
- the f-word
- Bríet
- Kvenréttindafélagið
- Kvennasögusafn
- Femínistafélag Akureyrar
- Ungfemínistar
- Kvennaslóðir
- http://
Í uppáhaldi
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nota bene
Stopp
Stopp
Spurt er
Bloggvinir
-
konur
-
soley
-
vglilja
-
salvor
-
andreaolafs
-
kristinast
-
thelmaasdisar
-
ingibjorgelsa
-
truno
-
bryndisisfold
-
vefritid
-
poppoli
-
hlynurh
-
margretsverris
-
annapala
-
hafmeyja
-
ugla
-
halla-ksi
-
kamilla
-
ingibjorgstefans
-
feministi
-
stebbifr
-
hrannarb
-
aas
-
bjorkv
-
ibbasig
-
ingo
-
matthildurh
-
emmus
-
svartfugl
-
gattin
-
saedis
-
gurrihar
-
afi
-
kennari
-
eddaagn
-
steindorgretar
-
fanney
-
brisso
-
gudfinnur
-
rungis
-
730
-
killerjoe
-
kosningar
-
id
-
orri
-
kjoneden
-
halkatla
-
vilborgo
-
tommi
-
jenfo
-
tryggvih
-
heiddal
-
almapalma
-
hrafnaspark
-
fletcher
-
klaralitla
-
lauola
-
maple123
-
ruthasdisar
-
alfholl
-
heidathord
-
siggisig
-
kjarninn
-
bjorgvinr
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
paul
-
arh
-
bleikaeldingin
-
astamoller
-
bene
-
bergruniris
-
hrolfur
-
hrafnhildurolof
-
temsaman
-
oskvil
-
handsprengja
-
baddinn
-
begga
-
abg
-
elvabjork
-
lks
-
super
-
athena
-
perlaheim
-
thorak
-
hallarut
-
malacai
-
almaogfreyja
-
volcanogirl
-
sabroe
-
astan
-
bjargandiislandi
-
rustikus
-
evags
-
sannleikur
-
zeriaph
-
hildurhelgas
-
drum
-
minos
-
kerla
-
stjaniloga
-
larahanna
-
lotta
-
mariataria
-
manisvans
-
sigurjonsigurdsson
-
joklasol
-
snj
-
saethorhelgi
-
tara
-
toshiki
-
sverdkottur
-
ver-mordingjar
-
tharfagreinir
-
thorsteinnhelgi
-
thuridurbjorg