16.7.2007 | 09:40
Lærdómur gærdagsins og Jafnréttisstofa
Það tekur tvo og hálfan tíma að setja saman 6 skúffu kommóðu frá IKEA ef 2 vinna verkið. Innifalið í því er samsetning, 1 kaffipása og þrif. Burður og bakverkir ekki talið með!
**
Hlakka ógó mikið til að sjá hvaða kona verður ráðin framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. Staðsetning Jafnréttisstofu er líka alltaf til umræðu. Reykjavík eða Akureyri? Skiptar skoðanir á því eins og öðru. Helstu rökin með því að stofan eigi að vera í Reykjavík eru að eitt af hennar hlutverkum er að vinna náið með stjórnsýslunni - og stjórnsýslan er í Reykjavík. Fjarlægðin gerir ekki bara fjöllin blá heldur einnig Jafnréttisstofu erfiðara um vik að vera í hringiðu jafnréttismála. Ég segi allavega fyrir mína parta að samstarfið og samskipti við Jafnréttisstofu hefðu pottþétt orðið meiri ef hún hefði verið í höfuðborginni. Sumir vilja meina að flutningur stofunnar út á land hafi verið liður í að draga úr vægi jafnréttismála - í það minnsta hafi það sýnt að þessi mál eru langt í frá í forgang.
Aðrir vilja meina að stofan sé jafn vel staðsett út á landi og að fólk úti á landi verði fyrir mismunun. Konur úti á landi verði t.d. fyrir tvöfaldri mismunun sem landsbyggðarkonur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (70)
15.7.2007 | 00:35
Karlar, konur og börn - og ég
Alltaf finnast mér svona fyrirsagnir skrýtnar. Má túlka þær annars vegar svo að líf karlmanna séu minna virði en kvenna og barna og hins vegar að það sé karlmannsverk að verja líf kvenna og barna - jafnvel með sínu eigin. Að mínu mati er þetta úreltur hugsunarháttur sem á vel heima í kynjaskiptu karlrembuþjóðfélagi... en á illa heima í jafnréttissinnuðu samfélagi. Miðað við stöðu jafnréttismála er samt kannski ekki skrýtið að þetta lifi enn!
**
Upplýsingaskyldan bendir síðan á lesbók Moggans í dag. Þar erum við stöllur, Auður Magndís og ég, í hlutverki lesara og glápara. Ég er glápari og kem hér um bil til dyranna eins og ég er klædd. Ljósmyndarinn mætti hálftíma of snemma - þegar ég var um það bil að skella mér í sturtu og var enn í jogginggallanum. Ég hljóp upp og skipti um föt en verð að segja að myndin er einkar lýsandi fyrir mig - lítið pjatt og prjál og soldið kaós í gangi. Þegar ljósmyndarinn var farin uppgötvaði ég að ég var enn með stýrurnar í augunum - sést samt ekki á myndinni. Ég er pínku hrifin af svona óreiðumyndum í fjölmiðlum. Þó skiptir öllu meira máli hvað við stöllur höfum að segja - ég um sjónvarpsþættina The L word og Auður Magndís um skaðsemi hlutleysis! Endilega kíkið á...
![]() |
Konur og börn meðal látinna í Rauðu moskunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
13.7.2007 | 12:37
Gott
Gott að heyra að dómi héraðsdóms Reykjavíkur frá síðustu viku hefur verið áfrýjað. Þá er enn von til að réttlætið nái fram að ganga og að íslenskir dómstólar komist að þeirri niðurstöðu að nauðgun er glæpur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
12.7.2007 | 20:36
Fróðleikur dagsins
Ef fólk er úti allan daginn án þess að nota sólarvörn er hætta á sólbruna.
Það er vont að mæta á síðustu stundu á rangan stað þegar fólk er hjólandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.7.2007 | 23:29
Líka klukkuð!
Beta er að hrella vinkonur sínar og vini um þessar mundir með klukki... og af því að ég geri alltaf eins og Beta segir mér að gera þá koma hér 8 atriði um mig sem fáir vita - án gríns!
**
1. Er búin að vera á leiðinni að gifta mig í mörg ár en strandar á að ekki fæst niðurstaða í framkvæmdina. Skemmtilegasta hugmyndin so far er að stinga af til Las Vegas og láta Elvis Presley eftirhermu pússa okkur saman í gegnum bílalúgu!
2. Hef fordóma gagnvart Las Vegas. Því miður þar sem #1 gengur ekki upp fyrir vikið...
3. Ég er ekki karlahatari.
4. Ég brosi oft á dag til karlmanna sem ég hef engan áhuga á að sofa hjá. Neyðist kannski til að endurskoða þessa syndsamlegu hegðun í kjölfar dóms héraðsdóms í síðustu viku.
5. Ég þoli ekki að kaupa skó.
6. Ég er í mótþróa gegn hópsálinni og ætla því ekki að klukka 8 einstaklinga heldur færri...
7. Ég sagaði slatta af spýtum í handrið um helgina - og ég á hamar.
8. Fyrsti bíllinn minn var Citroen sem hét Litla gula hænan. Stundum þurfti að koma honum í gang með skrúfjárni.
**
Ég ætla að klukka:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
11.7.2007 | 16:17
Útungarvélar?
![]() |
Ungar konur í Noregi verði verðlaunaðar fyrir að eignast barn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
9.7.2007 | 23:34
Hvað er að gerast?
Bíð í ofvæni eftir fréttum um að dómi héraðsdóms Reykjavíkur frá í síðustu viku verði áfrýjað til hæstaréttar. Ég afber ekki tilhugsunina um að nauðganir verði lögleiddar á Íslandi. Hvað er að gerast? Akkúrat núna hræðir mig sú staðreynd að Ísland er karlaveldi í þeim skilningi að karlmenn eru í meirihluta á þingi, ríkisstjórn og hæstarétti - og í öllum stjórnmálaflokkum. Hvort sem fólki líkar betur eða ver að horfast í augu við það þá mun það verða karlmannsverk að ákveða hvort nauðganir verði lögleiddar hér eða ekki. Það er að segja ef dómnum verður áfrýjað. Vonandi standa þeir undir ábyrgðinni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (42)
9.7.2007 | 01:25
Ekki allt í fína í Kína
Í Kína ríkir ekki jafnrétti á milli kynja, frekar en í öðrum heimshlutum. Drengir eru í hærri metum en stúlkur og þess vegna eru þeir eftirsóttari sem einkabarnið. Sums staðar leyfist foreldrum að eignast annað barn ef þau eru svo óheppin að fyrsta barnið er stúlka - eða ef barnið er fatlað. Það er hálfgerð fötlun að eignast stelpu. Ef hjón eru svo óheppin að eignast stelpu glatast ættarnafnið. Stelpurnar giftast nefnilega og taka upp nafn eiginmannsins. Það þykir ekki gott að glata ættarnafninu - þó það þyki í lagi fyrir konur að glata sínu nafni við giftingu.
Í sumum héruðum í Kína tíðkast að veita vel menntuðu og efnuðu fólki undanþágu frá "eitt barn á mann" reglunni. Stéttskiptingin skiptir því máli í þessu, eins og mörgu öðru. Konur eru neyddar í fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Kvenkyns fóstrum er eytt.
Vegna þess að drengir eru eftirsóknarverðari hefur skapast ójafnvægi í kynjahlutföllum þar sem mun fleiri karlmenn en kvenmenn eru í Kína. Ég hef heyrt tölur allt upp í að á næstu 15 árum verði um 30 milljón fleiri karlar en konur í Kína. Hvað gerist þá í baráttunni um kvonfang? Sumir foreldrar gefa stúlkurnar sínar til ættleiðingar svo þau geti gert aðra tilraun til að eignast strák. Ég las á netinu að stjórnvöld hygðust jafnvel banna ættleiðingar stúlkna úr landi til að tryggja fleiri karlmönnum brúðir. Sel það ekki dýrara en ég keypti það, enda ekki búin að fletta því upp til að staðfesta heimildir...
Er ekki frá því að ef í Kína væri jafnrétti milli kynja væru vandamálin ekki svona mörg...
![]() |
Barneignalögin skapa spennu á milli stétta í Kína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
7.7.2007 | 23:45
Til hamingju Ísland...
... með að Beta er hér!
Ekki fór það svo að 07.07.07 skyldi ekki bera með sér gleðifréttir! Til hamingju Beta og öll hin sem komuð að Mýrinni. En ég er nú svo hlutlaus að ég veit alveg að Beta á stóran hlut í þessu...
Vá hvað ég er montin - af Betu - ef það skyldi hafa verið eitthvað óljóst!!!
Bloggar | Breytt 8.7.2007 kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.7.2007 | 22:47
Í sorg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (91)
Tenglar
Félög og fleira
- Femínistafélag Íslands Uppáhaldsfélagið
- Kynjafræði HÍ
- RIKK
- the f-word
- Bríet
- Kvenréttindafélagið
- Kvennasögusafn
- Femínistafélag Akureyrar
- Ungfemínistar
- Kvennaslóðir
- http://
Í uppáhaldi
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nota bene
Stopp
Stopp
Spurt er
Bloggvinir
-
konur
-
soley
-
vglilja
-
salvor
-
andreaolafs
-
kristinast
-
thelmaasdisar
-
ingibjorgelsa
-
truno
-
bryndisisfold
-
vefritid
-
poppoli
-
hlynurh
-
margretsverris
-
annapala
-
hafmeyja
-
ugla
-
halla-ksi
-
kamilla
-
ingibjorgstefans
-
feministi
-
stebbifr
-
hrannarb
-
aas
-
bjorkv
-
ibbasig
-
ingo
-
matthildurh
-
emmus
-
svartfugl
-
gattin
-
saedis
-
gurrihar
-
afi
-
kennari
-
eddaagn
-
steindorgretar
-
fanney
-
brisso
-
gudfinnur
-
rungis
-
730
-
killerjoe
-
kosningar
-
id
-
orri
-
kjoneden
-
halkatla
-
vilborgo
-
tommi
-
jenfo
-
tryggvih
-
heiddal
-
almapalma
-
hrafnaspark
-
fletcher
-
klaralitla
-
lauola
-
maple123
-
ruthasdisar
-
alfholl
-
heidathord
-
siggisig
-
kjarninn
-
bjorgvinr
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
paul
-
arh
-
bleikaeldingin
-
astamoller
-
bene
-
bergruniris
-
hrolfur
-
hrafnhildurolof
-
temsaman
-
oskvil
-
handsprengja
-
baddinn
-
begga
-
abg
-
elvabjork
-
lks
-
super
-
athena
-
perlaheim
-
thorak
-
hallarut
-
malacai
-
almaogfreyja
-
volcanogirl
-
sabroe
-
astan
-
bjargandiislandi
-
rustikus
-
evags
-
sannleikur
-
zeriaph
-
hildurhelgas
-
drum
-
minos
-
kerla
-
stjaniloga
-
larahanna
-
lotta
-
mariataria
-
manisvans
-
sigurjonsigurdsson
-
joklasol
-
snj
-
saethorhelgi
-
tara
-
toshiki
-
sverdkottur
-
ver-mordingjar
-
tharfagreinir
-
thorsteinnhelgi
-
thuridurbjorg