Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Afleiðingar klámiðnaðarins

Netið hefur auðveldað útbreiðslu barnakláms og barnaníðingum að komast í samband við hvern annan. Eins og ég hef áður vísað í þá skilaði starfshópur Bandaríska sálfræðifélagsins af sér skýrslu um áhrif klámvæðingarinnar þar sem meðal annars var spáð auknum kynferðislegum tilvísunum í börn, aukinni eftirspurn eftir barnaklámi og aukningu á kynferðisofbeldi. 

Það skyldi þó ekki vera að afurðir klámiðnaðarins væru barnaníðingar og nauðgarar? Veit af gefnu tilefni að það þykir algjört tabú að velta þessum spurningum upp - en að mínu mati er það óábyrgt og hættulegt að stinga höfðinu í sandinn og láta eins og ekkert sé. Vinsælasta klámefnið er það sem inniheldur ofbeldi og niðurlægingu. 


mbl.is Fangelsi fyrir að vera með barnaklám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gættu hvers þú óskar þér...

... óskin gæti ræst!

Konum er stundum sagt að þær geti sjálfum sér um kennt fyrir að vera á lágum launum, fyrst þær sætti sig við launin og taki að sér láglaunastörf þá sé þeim bara nær. Boðskapnum fylgja oft góðlátleg ráð um að vinna bara við eitthvað annað. Nú hafa nýútskrifaðar ljósmæður greinilega tekið þessum ráðum og neita hreinlega að ráða sig til vinnu á þeim lágu kjörum sem þeim er boðið. Hvað ætli myndi gerast ef hjúkrunarfræðingar færu eftir þessum ráðum líka? Kennarar? Leikskólakennarar? Konur í umönnunarstörfum, konur sem starfa við ræstingar, konur sem vinna við verslun og þjónustu, konur sem vinna í bönkum, konur sem svara í síma, konur sem sem sem... halda uppi hálfum himninum?

Það er mun skynsamlegra að hækka launin heldur en ætla að gera allar konur að bankastjórum og forstjórum. Það er nefnilega þannig að samfélagið fúnkerar ekki nema með þessum störfum og vinnuframlagi kvenna - alveg eins og karla! 


Merkilegt...

Þjóðin varð vitlaus þegar gripið var til aðgerða til að koma í veg fyrir klámráðstefnu hér á landi... Samt ekki öll því skoðanakönnun í Fréttablaðinu leiddi í ljós að þó að 70% karla vildu fá klámkallana hingað þá vildi um 50% kvenna það ekki. Skýr kynjamunur þarna... wonder why... 

En engu að síður - meirihluti þjóðarinnar var sátt við að hingað gætu business karlar komið til að þinga um sínar klámsíður og auka viðskipti sín á milli. Klámsíður þar sem hægt var að skoða ungar barnapíur leika ungabörn, sjá endaþarminn á unglingsstúlkum eyðilagðan, skoða teiknimynd af því að þegar 2 karlkynslífverðir björguðu ungum dreng frá drukknum og nauðguðu honum svo þegar þeir voru búnir. Einnig var hægt að skoða grófar hópnauðganir af konum, óléttuklám þar sem spennan gekk út á að skaða ekki fóstrið... og margt margt fleira subbulegt... En nei, sumir eru enn á því að það hafi verið hræðilegt að grípa til aðgerða til að stöðva viðskiptaþing um þetta - og framleiðslu á klámefni hér á landi... En svo heyrist ekki múkk þegar nokkrum bláfátækum karlmönnum sem spila afskaplega fallega á harmónikkur er hent úr landi! Shocking 


Þetta hefði Silvía Nótt sagt...

Ef Silvía Nótt hefði aftur tekið þátt í keppninni í ár hefði verið í góðu lagi fyrir hana að kenna einhverri austantjaldsmafíu um tapið. En keppandi sem kemur fram sem sinn eigin karakter... Nei...Shocking þá er nú best að bara bíta í það súra að hafa tapað. Ánægjulegast fannst mér - allavega við fyrstu sýn - að klámvæddustu lögin virðast ekki hafa komist áfram Smile Yes. 

En... geri ráð fyrir því að Sigmar gangi í karlahóp Femínistafélagsins þegar hann kemur heim. Tounge


mbl.is Eiríkur: Samsæri austantjaldsmafíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barátta gegn nauðgunum

Picture 13Rauði krossinn í Noregi er með auglýsingu á heimasíðunni sinni um eina afleiðingu stríðs fyrir konur - þegar nauðganir eru notaðar sem vopn í stríði. Textinn sem fylgir myndunum þrem, útleggst einhvern veginn svona á íslensku:

1)       Versta vopnið er ekki endilega lengst til vinstri
2)       Í stríði gerast ekki bara hræðilegir hlutir á vígvellinum
3)      Hjá mörgum konum setur stríðið augljós spor

Á heimasíðu norska Rauða krossins er hægt að skoða átakanlega stuttmynd um málið. 

Ps. og fyrir áhugafólk um birtingarmyndir kynjanna... og hvaða nekt er leyfð og hvaða ekki... athyglisvert að spá í að ekki var hægt að hafa konuna í fötum... þó það sé mjög auðvelt að mynda konur í fötum þannig að óléttan sjáist... en hins vegar er bannað að sýna "vopnið" sem notað er í stríði gegn konum! Af hverju er karlinn ekki ber? 


Tilviljun?

Held ég hafi fengið hugskeyti frá Gísla í karlahópnum í gær. Setti inn innlegg  um húsráð og sá svo í Fréttablaðinu í morgun að þar er hann með fyrirtakshúsráð! Tilviljun? Gasp

Já sennilega....

Ætla annars að blogga um kven- og karlmennskuímyndir á eftir... Tilefnið spurning frá Bjögga í gær + auglýsingar í Fréttablaðinu í dag sem líta út eins og þær séu teknar úr karlrembublöðum... en verið er að markaðssetja til kvenna.   


Húsráð

Eins og allir vita er ég fyrirmyndarhúsmóðir í Grafarholtinu! Whistling Sem slík luma ég auðvitað á nokkrum góðum húsráðum. Hér er það nýjasta úr mínum viskubrunni - var að fatta þetta bara í gær. Þannig er það nefnilega á mínu heimili að það er afskaplega erfitt að eiga kökur og þess háttar góðgæti. Allt svoleiðis á það til að hverfa á augabragði. En ég er nú með lausn á því fyrir heimili sem glíma við sama vanda. Galdurinn felst í því að baka vondar kökur! Svo er hægt að raða þeim snyrtilega á fat og geyma í marga daga svo gestir og gangandi geti dáðst að myndarskapnum. Eina sem ég er ekki búin að finna ráð við ennþá er hvernig hægt er að koma í veg fyrir að gestirnir smakki "kræsingarnar".

Aðeins um öfga

Var að ræða við vinkonu mína í hádeginu og talið barst að öfgum. Femínistar og aðrir í réttindabaráttu eru nefnilega stundum sakaðir um öfga. Ég hins vegar lít á þetta akkúrat öfugt. Mér finnst samfélagið öfgafullt og er að berjast fyrir því að við verðum minna öfgafull - meira normal, svo ég leyfi mér að sletta aðeins. 

Nokkur dæmi: 

Normal ástand: bæði kyn taka jafnan þátt í ákvarðanatöku og mótun samfélagsins.

Öfgar: Annað kynið ráði nánast öllu eða sé hér um bil alls staðar með meirihlutavald. Sem er staðan í dag. 

*

Normal ástand: Að framlag kynjanna til samfélagsins sé metið sem jafnverðmætt.

Öfgar: Að öðru kyninu séu greidd hærri laun fyrir sömu störf. Að hefðbundin störf annars kynsins séu metin verðmætari en hefðbundin störf hins kynsins. Að annað kynið sjái að mestu um ólaunuð störf heimilisins á meðan hitt kynið vinnur yfirvinnu. Þetta er staðan í dag. 

*

Normal: Kynfrelsi.

Öfgar: Að kynlíf eigi að snúast um völd og yfirráð eða hlutgerða líkama. Kynferðisofbeldi. Þetta er staðan í dag þar sem stór hluti kvenna og barna verður fyrir kynferðisofbeldi.  

*

Normal: Að sjá og meta fegurðina í margbreytileikanum.

Öfgar: Að ætla að steypa öllum í sama mót. Þetta er staðan í dag.

*

Normal: Að eldast virðulega.

Öfgar: Að ætlast til þess að konur líti út eins og 25 langt fram eftir aldri. Að fara í herferð til að útrýma hrukkum. Þetta er staðan í dag. 

*

Held þessi listi gæti orðið endalaus svo ég ætla að skilja við hann, ja ekki einu sinni hálfkláraðan, heldur rétt nýbyrjaðan... 


Svör stjórnmálaflokkanna

Femínistafélagið sendi 10 spurningar um jafnréttismál kynjanna til allra stjórnmálaflokkana. Svörin eru komin inn á netið - þ.e. frá þeim sem svöruðu. VG, Samfylkingin, Framsókn og Frjálslyndi flokkurinn sendu svör.  Hins vegar ákvað Sjálfstæðisflokkurinn að dissa þetta alveg og Íslandshreyfingin hefur ekki náð að svara ennþá vegna anna. 

Anyways... það er alltaf gott að kynna sér málefnin. Ef þú vilt skoða svörin þá eru þau hér


Græðgi

Var að horfa á kosningakastljósið. Síðast þegar ég horfði á það þá var umræða um heilbrigðismál og skattamál. Þá var kynjaskiptingin afleit - hér um bil allt konur um heilbrigðismálin og allt karlar um skattamálin. Í kvöld var skiptingin mun betri. Í fyrra hlutanum, umhverfismálin, voru reyndar 4 konur og 2 karlar en í seinni hlutanum var skiptingin hnífjöfn, 3 af hvoru kyni. Mér finnst miklu skemmtilegra að horfa á svona umræður þar sem bæði kyn koma saman og ræða málin... enda samræmist það minni hugsjón - meira gaman saman en í sundur. Líka gáfulegra og lýðræðislegra Wink

Verst er reyndar hvað er stuttur tími fyrir hvert málefni. Jóhanna Vigdís þuldi einmitt upp fullt af málum sem þau ætluðu að ræða, eins og ábyrgð einstaklingins, hjóla og göngustíga og eitthvað fleira. Hefði verið gaman að heyra slatta um það - eftir að ég byrjaði að hjóla á föstudaginn er ég einmitt sérlega áhugasöm um hjólastíga! Síðast þegar ég átti hjól var það þriggja gíra og puð að hjóla upp brekkur. Nú er þetta leikandi létt...

En áfram með smjörið. Ég skil ekki hvað fólk er enn að hamast í stóriðjustefnunni - og þá er ég að meina að vilja halda áfram með hana. Það er ekkert nema græðgi. Það er verið að drepa jörðina og það verður að stoppa. Lausnin á því er ekki fleiri álver. Það er ömurlegt að horfa upp á það að fyrst er landsbyggðin brotin niður og svelt... og svo er komið með álver... eins og á silfurfati... sem einhverja lausn. Og svo er alltaf skemmtilegast að heyra þegar það er sagt að ríkið sé ekki að þessu. Yeah right. Síðan hvenær var Landsvirkjun einkafyrirtæki! Og ætlar einhver í alvörunni að halda því fram að ríkisstjórnin hafi ekki komið þarna nokkuð nærri??? Svo er það heldur ekkert nema græðgi þegar ein kynslóð tekur sig til og ráðstafar hér um bil öllum nýtanlegum virkjanakostum á einu bretti og byggir upp hvert álverið á fætur öðru. Hér eru skammtímarsjónarmið algjörlega látin ráða för - örfáum til hagsbóta í núni (aðallega erlendum álfyrirtækjum) en með óbætanlegum skaða fyrir jörðina, fyrir komandi kynslóðir og fyrir aðra atvinnuvegi. 

En hvenær ætli jafnréttismálin verði á dagskrá í kosningasjónvarpinu???


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Katrín Anna Guðmundsdóttir
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Femínisti og fleira
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband