Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007
8.5.2007 | 16:01
Í aðdraganda kosninga
Hér er nú smá viðbót sem hefði alveg mátt fylgja síðustu færslu. Fékk nefnilega inn um lúguna hjá mér í morgun hverfisfréttablaðið frá Sjálfstæðisflokknum. Dögg Pálsdóttir er með grein á forsíðunni og það er eina greinin eftir konu. Þrjár greinar eru eftir karla. Framboðslistinn í mínu kjördæmi er svo sýndur. Kynjahlutföllin frábær ef ekki er horft á sætin - konur í meirihluta, 6 á móti 4 körlum. En.... Í fyrsta sæti er karl. Í öðru sæti er karl. Í þriðja sæti er karl. Í fjórða sæti er kona. Í fimmta sæti er karl. Konur eru svo í sætum 6 - 10. Samkvæmt skoðanakönnun Capacent sem birt er í dag fær Sjálfstæðisflokkurinn 6 þingmenn kjörna - karlarnir 4 allir í öruggum sætum. Þetta er eins og í gamla daga þegar karlarnir borðuðu fyrst og konurnar fengu svo leifarnar... Ekki nógu góður listi frá Sjálfstæðisflokknum!
Og svo er það auðvitað myndmálið. Seldar eru auglýsingar í blaðið. Á fyrstu opnu blasir við auglýsing frá sólbaðsstofu hverfisins. Þarf eitthvað að taka það fram að myndin er "að sjálfsögðu" af ungri konu í litlu bikiníi í ljósum? Jamm - ekki að flokkurinn velji auglýsingar í blaðið en er ekki betra að sleppa því að hafa auglýsingar ef þetta er málið? Mér finnst allavega ekki við hæfi að flokkurinn taki þátt í skaðlegri útlitsdýrkun og hlutgervinu kvenna í kosningaplöggum sínum...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.5.2007 | 14:36
Fer þessu ekki að linna?
Af hverju þykir sumum í lagi að vera með svona fordóma opinberlega? Að vissu marki finnst mér gott þegar fólk opinberar fordóma sína því það er auðveldara að berjast við sýnilegan andstæðing heldur en úlf í sauðgæru. Ég aftur á móti verð miður mín að sjá alltaf aftur og aftur hversu skammt á veg við erum komin í jafnréttismálum. Þarna er framkvæmdastjóri að sýna bæði kvenfyrirlitningu og fordóma gagnvart samkynhneigðum án þess að blikna. Og þá auðvitað sem grín...
Rétt áðan asnaðist ég líka inn á bloggsíðu hjá einum sem kommentaði hjá mér og sá þar myndband þar sem karlmaður lék sér að því að kippa fötunum niður um eða upp um eða af konum þannig að þær stóðu eftir berar úti á götu... allt tekið upp og dreift út um allan heim. Það þarf engan snilling til að sjá að þegar slíkt er gert er það gegn vilja kvennanna - en mjög svo í anda karlrembu og ofbeldi - að taka það sem þeir vilja. Verst var að sjá að fólk, bæði konur og karlar voru að hlægja að þessu. Sama fólk hneykslast svo á menningarheimi Írana þar sem ekki má kyssa á hendur kvenna á almannafæri. Þó svo að mér finnist það óþörf regla... þá finnst mér hitt mun verra, en bæði eru af sama meiði - yfirráð karla yfir konum. Vona að þessu gegndarlausa kvenhatri og ofbeldi fari að linna. Eða ætlar fólk virkilega að berjast fyrir því að svona verði framtíðin?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
8.5.2007 | 10:31
Með allt á hornum sér
Blaðamaður DV hringdi í mig fyrir helgi til að fá viðbrögð við þessari kosningaauglýsingu. Ég geri ráð fyrir að þau birtist í blaðinu í dag. Fyndnast finnst mér að Samúel er með horn!
Myndin er fengin af síðunni hans Steingríms Sævarrs Ólafssonar
Þessa auglýsingu er hins vegar mjög áhugavert að greina út frá jafnrétti og stöðu kynjanna. Hann er klæddur í jakkaföt = vald, hún er klædd í kvenleikann = valdleysi. Þar að auki stendur hún ekki í eigin fætur... en hann er svo sterkur að hann bara heldur á henni! Svo eru þau ekki hjón en ansi mikill hjónasvipur með þeim á myndinni... Þetta væri auðvitað algjör skelfing ef ekki væri fyrir hornin. Þau ná samt auðvitað ekki að bjarga þessu fyrir horn - en eru ansi táknræn í samhengi við framsetninguna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
7.5.2007 | 23:32
Hljómar kunnuglega
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2007 | 11:58
Femínísk bókabúð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
6.5.2007 | 11:38
Allt að gerast
Verst að vera ekki með kosningarétt í Frakklandi. Hef heldur ekki fundið neitt atkvæði til sölu á ebay... hefði alveg verið til í að greiða 170 kr fyrir eitt stk slíkt En að öllu gamni slepptu. Ég vona að Royal vinni. Að sjálfsögðu. Finnst hún miklu frambærilegri og hæfari. Að auki yrði hún fyrsti kvenforseti Frakklands. Kominn tími á að það vígi falli en það kemur svo sem ekki brjálæðislega á óvart að í samfélagi þar sem karlremban er kyrfilega fest í sessi að þá mælist karlinn með meira fylgi í skoðankönnunum þrátt fyrir að hann sé minna hæfur
En það er fleira að gerast. Alþjóðlegi megrunarlausi dagurinn er í dag svo það er um að gera að pæla aðeins í okkar útlits- og megrunardýrkandi samfélagi. Hvað ætli sé hátt hlutfall þjóðarinnar í megrun á hverjum degi? Svona for the record þá má bæta því við að skilaboð megrunarlausa dagsins eru ekki að sukka og svína og varpa fyrir róða öllum heilsufarspælingum. Við eigum auðvitað alltaf að hugsa um heilsuna - borða hollt og hreyfa okkur eitthvað á hverjum degi. En það á að vera óháð holdarfari og við eigum ekki að rembast við að steypa alla í sama mót. Margbreytileikinn er miklu skemmtilegri og fallegri. Heilsa óháð holdarfari er mottóið
Mér heyrðist líka í útvarpinu að í dag væri alþjóðlegur hlátursdagur. Ég verð nú að læra í dag svo ég veit ekki hvort ég eigi eftir að smæla allan hringinn en hlýt að koma góðum hlátursrokum að inn á milli.
![]() |
Forsetakjör hafið í Frakklandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
5.5.2007 | 17:38
Gaman að hjóla
Gat verið! Ég sem keypti mér nýtt hjól í vikunni... Er reyndar mjög ánægð með það fyrir utan að það er tregt að fara í 2 gír! Þarf að láta kíkja á það. En mjög gott að hjóla á því. Erum nú þegar búin að fara í fyrsta rómantíska hjólreiðatúrinn . Flaug bara einu sinni á hausinn en það var allt í lagi. Skutlaði mér glæsilega í grasið og slapp við öll meiriháttar meiðsl! Líður samt hálfgert eins og atvinnuíþróttamanni - lemstruð hér og þar
En það er gaman að vera byrjuð að hjóla aftur. Mæli með þessu
![]() |
Mikil stemning á reiðhjólauppboði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.5.2007 | 12:49
Kosningar
Nú er bara vika í kosningar og spennan eykst. Ég er ekki ennþá búin að ákveða hvaða flokk ég ætla að kjósa. Sé að allt stórskotaliðið er í mínu kjördæmi... Reykjavík suður. Það eru Ingibjörg, Kolbrún, Jónína, Geir, Jón og Ómar. Meira að segja jafnt kynjahlutfall í efsta sæti - eina kjördæmið sem státar af því :) Líka áhugavert að sjá að það er mjög skýr skipting eftir kyni varðandi hver þeirra hafa verið áberandi í jafnréttisbaráttunni! Allar konurnar en enginn af körlunum... hmmm...
Ég myndi vilja sjá meiri áherslu á jafnréttismál í kosningaumræðunni. Mér sýnist t.d. að bæði Fréttablaðið og Capacent - Gallup séu ekki með jafnréttismál listuð upp í spurningunni um hvaða málaflokka kjósendur telja mikilvæga. Kosningaþættirnir hafa líka verið afar slappir í að tala um jafnréttismál. Samt skiptir kyn afskaplega miklu máli og staða jafnréttismála ekki nándar nærri góð og við virðumst vera í bakslagi. Vonandi verða þáttastjórnendur með jafnréttismálin hátt skrifuð nú í síðustu vikunni!
***
En að öðru kosningamáli - Ég sá að Framtíðarlandið auglýsir í Fréttablaðinu í dag og tekur afstöðu með og á móti flokkum. Grænu atkvæðin eru Íslandshreyfingin, VG og Samfylkingin en þau gráu Sjálfstæðisflokkur, Frjálslyndir og Framsókn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.5.2007 | 20:56
Megrunarlausi dagurinn 2007
Megrunarlausi dagurinn 2007
Megrunarlausi dagurinn (International No Diet Day) er alþjóðlegur baráttudagur gegn megrun, átröskunum og fordómum í garð feitra. Árið 1992 stofnaði Mary Evans Young, fyrrum sjálfsveltisjúklingur, International No Diet Day til þess að vekja athygli á skaðlegum áhrifum útlitsdýrkunar og mismununar í garð þeirra sem falla utan hins viðurkennda ramma um æskilegan líkamsvöxt. Síðan þá hefur skipulögð dagskrá verið haldin víða um heim árlega þann 6. maí til þess að vekja athygli á þjáningum sem hljótast af þráhyggju um grannan vöxt og almennri andúð á fitu. Á Íslandi verður gefið út blaðið Líkamsvirðing sem verður dreift um allt land með Fréttablaðinu sunnudaginn 6. maí.
Á þessum degi eru allir hvattir til þess að láta af viðleitni sinni til þess að grennast, þó ekki væri nema í einn dag, og leyfa sér að upplifa fegurð og fjölbreytileika mismunandi líkamsvaxtar og sjá fyrir sér veröld þar sem megrun er ekki til, þar sem hvers kyns líkamsvöxtur getur verið tákn um hreysti og fegurð og mismunun vegna holdarfars þekkist ekki.
Á þessum degi viljum við:
o fagna margbreytilegum líkamsvexti af öllum stærðum og gerðum
o minna á rétt ALLRA til heilbrigðis, hamingju og velferðar óháð líkamsvexti
o lýsa yfir opinberum frídegi frá hugsunum um mat, megrun og líkamsvöxt
o vekja athygli á lítt þekktum staðreyndum um megrun, heilsu og holdafar
o minna á hvernig megrun og stöðug krafa um grannan vöxt er samfélagsleg atlaga gegn konum
o minnast fórnarlamba átraskana og hættulegra megrunaraðferða
o berjast gegn andúð á líkamsfitu og fordómum vegna vaxtarlags.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tenglar
Félög og fleira
- Femínistafélag Íslands Uppáhaldsfélagið
- Kynjafræði HÍ
- RIKK
- the f-word
- Bríet
- Kvenréttindafélagið
- Kvennasögusafn
- Femínistafélag Akureyrar
- Ungfemínistar
- Kvennaslóðir
- http://
Í uppáhaldi
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nota bene
Stopp
Stopp
Spurt er
Bloggvinir
-
konur
-
soley
-
vglilja
-
salvor
-
andreaolafs
-
kristinast
-
thelmaasdisar
-
ingibjorgelsa
-
truno
-
bryndisisfold
-
vefritid
-
poppoli
-
hlynurh
-
margretsverris
-
annapala
-
hafmeyja
-
ugla
-
halla-ksi
-
kamilla
-
ingibjorgstefans
-
feministi
-
stebbifr
-
hrannarb
-
aas
-
bjorkv
-
ibbasig
-
ingo
-
matthildurh
-
emmus
-
svartfugl
-
gattin
-
saedis
-
gurrihar
-
afi
-
kennari
-
eddaagn
-
steindorgretar
-
fanney
-
brisso
-
gudfinnur
-
rungis
-
730
-
killerjoe
-
kosningar
-
id
-
orri
-
kjoneden
-
halkatla
-
vilborgo
-
tommi
-
jenfo
-
tryggvih
-
heiddal
-
almapalma
-
hrafnaspark
-
fletcher
-
klaralitla
-
lauola
-
maple123
-
ruthasdisar
-
alfholl
-
heidathord
-
siggisig
-
kjarninn
-
bjorgvinr
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
paul
-
arh
-
bleikaeldingin
-
astamoller
-
bene
-
bergruniris
-
hrolfur
-
hrafnhildurolof
-
temsaman
-
oskvil
-
handsprengja
-
baddinn
-
begga
-
abg
-
elvabjork
-
lks
-
super
-
athena
-
perlaheim
-
thorak
-
hallarut
-
malacai
-
almaogfreyja
-
volcanogirl
-
sabroe
-
astan
-
bjargandiislandi
-
rustikus
-
evags
-
sannleikur
-
zeriaph
-
hildurhelgas
-
drum
-
minos
-
kerla
-
stjaniloga
-
larahanna
-
lotta
-
mariataria
-
manisvans
-
sigurjonsigurdsson
-
joklasol
-
snj
-
saethorhelgi
-
tara
-
toshiki
-
sverdkottur
-
ver-mordingjar
-
tharfagreinir
-
thorsteinnhelgi
-
thuridurbjorg