20.6.2007 | 18:47
Auglýst eftir hugmyndum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
20.6.2007 | 15:41
Kvennaslóðir opna á ný
nýjan vef Kvennaslóða.
Kvennagagnabankinn Kvennaslóðir inniheldur upplýsingar um
kvensérfræðinga á ýmsum sviðum. Markmið Kvennaslóða er að gera
þekkingu og hæfni kvenna sýnilega og aðgengilega.
Kvennaslóðir er vettvangur fjölmiðla, fyrirtækja og stjórnvalda til
þess að finna hæfar konur til margvíslegra starfa með skjótvirkum
hætti. Við hjá Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla
Íslands höfum endurhannað gagnagrunninn, gert nýtt útlit og bætt við
nýjum efnisflokkum á nýja vefnum.
Opnunin verður fimmtudaginn, 21. júní, kl. 12 í sal
Þjóðminjasafns Íslands.
Dagskrá opnunarinnar:
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnar vefinn og
flytur ávarp.
Margrét Kristmannsdóttir formaður Félags kvenna í atvinnurekstri
flytur erindi.
Pallborðsumræður undir stjórn Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur.
Þátttakendur í pallborði:
Karl Blöndal
Steinunn Stefánsdóttir
Sveinn Helgason
Valgerður Jóhannsdóttir
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Fundurinn er öllum opinn og það væri sönn ánægja að sjá ykkur
sem flest. :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.6.2007 | 12:18
Hvað er til ráða?
Vona að það verði fluttar fleiri fréttir af þessu og að þá komi fram til hvaða leiða þarf að grípa til að sporna gegn kynferðisbrotum gagnvart börnum. Eftir að kynferðisbrot gegn börnum urðu opinbert mál, þ.e. byrjað að tala um þau opinberlega og gripið til úrræða gegn þeim hefur okkur eingöngu miðað eitthvað áfram hvað varðar lagaleg réttindi og úrræði fyrir þolendur eftir að brotið hefur átt sér stað. Einhverjar framfarir hafa orðið í réttarkerfinu en það er ennþá handónýtt og ekkert hefur gengið í að fækka ofbeldisverkunum. Skýrsla Ameríska sálfræðifélagsins, sem ég hef minnst á áður, telur að einhverjar líkur séu á aukningu á kynferðisbrotum gegn börnum í kjölfar klámvæðingarinnar. Einnig er greint frá þar að kynferðislegar tilvísanir í börn hafi aukist á undanförnum árum og spáð enn meiri aukningu í því. Þetta er mjög ógnvekjandi framtíðarspá og ég er enn að vona að þjóðin geti tekið sig saman, verið á varðbergi og hafnað öllum kynferðistengingum í börn.
Í þessu samhengi langar mig að minnast á bloggið hennar Ellýar Ármanns. Þar er núna færsla um fertuga konu sem tælir dreng sem "er í mesta lagi 16". Í mesta lagi þýðir hámark - en gefið er í skyn að hann geti jafnvel verið yngri. Kynferðislegur lögaldur á Íslandi er 14 ár sem er lægra en í löndunum í kringum okkur. Einstaklingar hér eru skilgreindir sem börn til 18 ára aldurs. Þegar kynferðisbrotakafli hegningarlaganna var endurskoðaður voru nokkur samtök sem lögðu fram tillögu þess efnis að kynferðislegur lögaldur yrði hækkaður í þeim tilgangi að vernda börn gegn kynferðislegu ofbeldi/ágangi af hálfu fullorðinna einstaklinga. Það gekk ekki í gegn og rökin sem voru gefin voru að börn á þessum aldri væru sum hver byrjuð að stunda kynlíf með hvort öðru. Tillögurnar miðuðu samt allar við að gefinn væri sveigjanleiki fyrir þessu þannig að t.d. væri ákvæðið þannig að þetta gilti um einstaklinga sem væru einhverjum x árum eldri en viðkomandi barn. Slíkt hefði verið auðvelt að setja í lögin en var ekki gert. Því var haldið fram að þessi grein verndaði börn að hluta til gegn fullorðnum:
Hver sem með blekkingum, gjöfum eða á annan hátt tælir ungmenni [yngra en 18 ára]1) til samræðis eða annarra kynferðismaka skal sæta fangelsi allt að 4 árum
Þessi klausa er einfaldlega ekki nóg. Það er áhugavert að skoða hegningarlögin út frá bloggfærslu Ellýar Ármanns um fertugu konuna og drenginn sem er í mesta lagi 16 ára. Mín skoðun er sú að með því að samþykkja svona færslur sem "saklausa skemmtun" sé fullorðið fólk að bregðast skyldum sínum um að vernda börn gegn kynferðisofbeldi. Það getur vel verið að málið sem Ellý setur fram myndi standast gagnvart lögum ef þetta væri sönn saga en þarna er verið að normalisera kynlíf eldri kvenna með drengjum sem eru ennþá börn. Í raun er verið að normalisera kynlíf fullorðinna með börnum. Veldur það fáum áhyggjum að þetta er vinsæla efnið sem selur?
![]() |
Rætt um hvernig hægt er að sporna við kynferðisbrotum gagnvart börnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
19.6.2007 | 21:15
Meira bleikt... en líka blátt
Bleiki dagurinn gekk vel. Ég fór reyndar ekki að versla rándýr föt eins og Sóley en fann hérna forláta bleikan hatt. Leið eins og ég væri alvöru Blues Brother með hattinn á kollinum. Fór í gönguna um miðbæ Reykjavíkur. Kristín Ástgeirs leiddi gönguna og það er hreint yndi að hlusta á hana segja hana frá. Það er óhætt að segja að hún sé hafsjór af fróðleik. Kaffið hjá KRFÍ lukkaðist vel. Pönnsurnar og kleinurnar frá mömmu hennar Þorbjargar Ingu runnu ljúft niður, ég hlakka ógó mikið til að lesa 19. júní blaðið en... best fannst mér ræðan hennar Ingibjargar Sólrúnar. Hún bar saman fullveldi Íslands og fullveldi kvenna. Þetta var ein besta ræða sem ég hef heyrt lengi. Algjörlega frábær. Vona að hún setji hana á netið því mig langar að lesa hana yfir í rólegheitum.
Eitt veldur mér þó nokkrum heilabrotum. Í dag sýnum við stuðning við jafnrétti með því að bera eitthvað bleikt. Sumir fjölmiðlar voru meira að segja bleikir í dag, t.d. mbl.is og visir.is. Hins vegar var skrýtið að sjá frétt á visir.is um að þeir hafi ráðið 2 karla í stjórnunarstöður, annars vegar sem varafréttastjóra og hins vegar sem ritstjóra Vísis. Efast ekki um að þetta séu fínir kallar, báðir tveir en það er hreinlega eins og karlarnir sjái ekki allar hæfu, gáfuðu og reynslumiklu konurnar sem eru á hverju strái. Þær fá ekki sömu tækifæri sem sést á þessum endalausu karlaráðningum. Ég velti líka fyrir mér af hverju fréttin birtist í dag? Það hljómar pínkulítið eins og jafnrétti í orði en ekki á borði þegar bleiki borðinn er settur á vefinn en sama tækifæri notað til að senda út skýr skilaboð um að það séu karlarnir sem ráða... aðra karla í stjórnunarstöður. Hefði nú ekki verið betra að bíða með þessa frétt þangað til á morgun?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.6.2007 | 10:23
Bleikar konur á bleikum degi

Til hamingju með daginn. Í dag eru liðin 92 ár síðan íslenskar konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt. Mig langar að tileinka daginn í dag 2 konum sem eru mér kærar. Það er auðvitað hún Auður Magndís sem er gáfuð, skemmtileg, málefnaleg, kjörkuð og svo ótal margt fleira. Hún tók við af mér sem talskona. Reyndar verður hún meira og minna í útlöndum þar til í september, en það er allt í lagi. Nægur tími samt til að láta til sín taka Núna er hún samt á fróninu í sumarfríi. Síðan er það hún Benedikta mín sem var sú besta vinkona sem kona getur eignast. Hugmyndarík, áræðin, hreinskilin og sagði það sem hún var að hugsa. Eiginleiki sem ég met mikils. Svo var hún auðvitað líka gáfuð og skemmtileg.
Reyndar á þriðja konan skilið að við höldum upp á daginn fyrir hana. Það er hún Elín sem á hugmyndina að Málum bæinn bleikan. Það er rosalega gaman að sjá hvað fólk er samstíga í að sýna hug sinn til jafnréttis í verki í dag með því að bera eitthvað bleikt eða gera eitthvað bleikt. mbl.is er bleikt í dag. DV gerir deginum góð skil, Morgunútvarpið var með frábæra umfjöllun í morgun. Meira að segja morgunþátturinn Zúber var bleikur í morgun. Ég heyrði reyndar ekki umræðurnar þar en náði þegar þau voru að kveðja og skilst að sitthvað hafi gengið á í umræðunni þar. Bleikar kveðjur til Siggu Lund! Heyrðist henni ekki veita af
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.6.2007 | 21:40
Það er næstum kominn 19. júní...
Hér er dagskráin fyrir bleikasta dag ársins - 19. júní:
Svona fögnum við 19. júní auk þess að bera eitthvað bleikt allan daginn!
10:00 Afhending Bleiku steinanna, hvatningarverðlauna Femínistafélagsis
13:00 Opið hús á Jafnréttisstofu, Borgum á Akureyri
16:15 Kvennasöguganga undir leiðsögn Kristínar Ástgeirsdóttur, sagnfræðings. Gangan hefst við Kvennaskólann í Reykjavík, gengið verður um Þingholtin og Kvosina og endað á Hallveigarstöðum
17:15 Hátíðardagskrá í samkomusal Hallveigarstaða í boði Kvenréttindafélags Íslands, Kvenfélagasambandisins og Bandalags kvenna í Reykjavík. Ávörp flytja Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður KRFÍ, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri 19. júní
18:00 Veitingar og kaffispjall á Hallveigarstöðum
20:30 Kvennamessa Kvennakirkjunnar í samvinnu við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands. Messan er haldin við þvottalaugarnar í Laugardal
22:00 Samkoma Ungliðahóps Femínistafélagsins á Cultura, Hverfisgötu
Kvenréttindafélag Íslands dreifir tímaritinu 19. júní frítt
UNIFEM selur bleik armbönd til styrktar kvennamiðstöðvum í Afghanistan
Aðstandendur Málum bæinn bleikan eru:
Bríet, Kvenréttindafélag Íslands, Stígamót, Femínistafélag Íslands, Kvennaráðgjöfin, Kvenfélagasamband Íslands, Samtök um Kvennaathvarf, Kvennasögusafn, Kvennakirkjan, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræði (RIKK) og UNIFEM
***
En svo er líka fleira í gangi. Dagný Matthíasdóttir ætlar t.d. að opna myndlistarsýninguna "19" í tilefni dagsins! Sýning er á DaLí Gallery á Akureyrir. Lesa má allt um sýninguna hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2007 | 10:04
Ímyndir karla og kvenna
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
17.6.2007 | 17:38
Konur halda uppi hálfum himninum
Ég óska nýjum fálkaorðuhandhöfum til hamingju. Ég er hins vegar óhress með að forseti Íslands skuli aldrei meta framlag kvenna og karla til samfélagsins jafnt. 4 konur og 6 karlar fá orðuna að þessu sinni. Það er allt í lagi þó slík slagsíða sé endrum og eins - en hún ætti þá líka að vera í báðar áttir, stundum fleiri konur, stundum fleiri karlar. Mynstrið að útnefna fleiri karla en konur er hins vegar fast í sessi sem segir okkur að framlag karla til samfélagsins er metið meira en framlag kvenna. Þetta sjáum við víða. Karlar fá hærri laun, fleiri orður, meiri styrki og fleiri nafngreindar styttur, svo dæmi séu tekin.
Er ekki kominn tími til að breyta? Konur halda uppi hálfum himninum og það á að sjást þegar framlag fólks til samfélagsins er viðurkennt með einhverjum hætti.
![]() |
Fálkaorðan veitt á Bessastöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
17.6.2007 | 11:33
Eintóm gleði og hamingja


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.6.2007 | 10:54
Á ferð og flugi
Hvað tekur langan tíma að ferðast frá Reykjavík til Helsinki? Ja, ef vélinni seinkar til landsins, bilar síðan og bilar síðan aftur þannig að þú missir af tengifluginu þá er svarið 16 tímar! Aðeins of langt fyrir minn smekk en því betra að komast á hótelið
Það ætti að vera aðvelt að giska á hvar ég er... og hvers vegna lítið heyrist í mér þessa dagana. Ég kem heim á morgun svo þetta er stutt stopp.
Keypti mér bókina "Það er staður í helvíti fyrir konur sem ekki styða hvor aðra" í fríhöfninni. Skemmtilegasta lesning. Hún er frekar beisik fyrir lengra komna en ég mæli sérstaklega með henni fyrir fólk sem vantar fljótlesna aðgengilega bók um helstu málefni. Bókina skrifa þær Lisa Marklund og Lotta - sem ég man ekki eftirnafnið á. Þær taka fjölmarg dæmi um eigin reynslu og flétta það saman við stöðuna, mýtur og rannsóknir - allt mjög aðgengilegt og á mannamáli eins og sagt er.
Það er oft skondið að skoða hvernig vel meðvitað jafnréttissinnað fólk getur dottið í kynjagryfjurnar. Í bókinni er tekið dæmi um að önnum kafið fólk geti hugsanlega fengið ræstingarkonu heim. KONU nota bene, ekki karl!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Tenglar
Félög og fleira
- Femínistafélag Íslands Uppáhaldsfélagið
- Kynjafræði HÍ
- RIKK
- the f-word
- Bríet
- Kvenréttindafélagið
- Kvennasögusafn
- Femínistafélag Akureyrar
- Ungfemínistar
- Kvennaslóðir
- http://
Í uppáhaldi
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nota bene
Stopp
Stopp
Spurt er
Bloggvinir
-
konur
-
soley
-
vglilja
-
salvor
-
andreaolafs
-
kristinast
-
thelmaasdisar
-
ingibjorgelsa
-
truno
-
bryndisisfold
-
vefritid
-
poppoli
-
hlynurh
-
margretsverris
-
annapala
-
hafmeyja
-
ugla
-
halla-ksi
-
kamilla
-
ingibjorgstefans
-
feministi
-
stebbifr
-
hrannarb
-
aas
-
bjorkv
-
ibbasig
-
ingo
-
matthildurh
-
emmus
-
svartfugl
-
gattin
-
saedis
-
gurrihar
-
afi
-
kennari
-
eddaagn
-
steindorgretar
-
fanney
-
brisso
-
gudfinnur
-
rungis
-
730
-
killerjoe
-
kosningar
-
id
-
orri
-
kjoneden
-
halkatla
-
vilborgo
-
tommi
-
jenfo
-
tryggvih
-
heiddal
-
almapalma
-
hrafnaspark
-
fletcher
-
klaralitla
-
lauola
-
maple123
-
ruthasdisar
-
alfholl
-
heidathord
-
siggisig
-
kjarninn
-
bjorgvinr
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
paul
-
arh
-
bleikaeldingin
-
astamoller
-
bene
-
bergruniris
-
hrolfur
-
hrafnhildurolof
-
temsaman
-
oskvil
-
handsprengja
-
baddinn
-
begga
-
abg
-
elvabjork
-
lks
-
super
-
athena
-
perlaheim
-
thorak
-
hallarut
-
malacai
-
almaogfreyja
-
volcanogirl
-
sabroe
-
astan
-
bjargandiislandi
-
rustikus
-
evags
-
sannleikur
-
zeriaph
-
hildurhelgas
-
drum
-
minos
-
kerla
-
stjaniloga
-
larahanna
-
lotta
-
mariataria
-
manisvans
-
sigurjonsigurdsson
-
joklasol
-
snj
-
saethorhelgi
-
tara
-
toshiki
-
sverdkottur
-
ver-mordingjar
-
tharfagreinir
-
thorsteinnhelgi
-
thuridurbjorg