27.6.2007 | 23:17
Allt í köku... eða klessu
Mér líður eins og ég stundi áhættuíþróttir í augnablikinu. Búin að fljúga tvisvar á hausinn það sem af er sumri... Samt er ég ekki að gera neitt sem er eins hættulegt og Formúlu 1 gaurinn sem ég sá tvisvar í sjónvarpinu í kvöld. Á sama tíma og landinn er í þjóðarátaki gegn ofsaakstri, Sniglarnir henda fyrrverandi formanni úr samtökunum fyrir ofsaakstur og heilbrigðisstarfsfólk gengur gegn umferðarslysum hampar Ríkisjónvarpið íþrótt sem gengur út á ofsaakstur og þeim sem hana stunda sem ofurhetjum... Jamm rökrétt! Ekki nóg með að gaurinn sé "hetja" - hann á afmæli og af því tilefni er hringt í Ungfrú Ísland og hún fengin á staðinn með köku. Er engin PR manneskja í kringum þetta batterí? Á sama tíma og þau eru að reyna að sannfæra þjóðina um að þátttaka í fegurðarsamkeppni sé góður stökkpallur fyrir lífið þá láta þau þá sem er svo ótrúlega "heppin" að vinna poppa upp hjá einhverjum gaur með köku - eins og um fylgdarþjónustu sé að ræða. Er ekki einhver til í að gauka að þeim að það sé ekki rétta leiðin til að afla keppninni virðingar heldur ýti undir að litið sé á keppnina sem gripasýningu og kúgun kvenna?
Og jújú... mér finnst konusýningar fáránlega hallærislegt fyrirbæri sem alvöru þenkjandi þjóð væri búin að dissa fyrir löngu... og er svo sem ánægð á meðan þau skjóta sig í fótinn... en samt!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
27.6.2007 | 12:03
Yrðum við sátt?
Segjum sem svo að einhver ríkisstjórnin myndi ákveða að banna áfengi og klám í Reykjavík í þeim tilgangi að stemma stigu við kynferðisofbeldi gegn börnum. Í öðrum sveitarfélögum yrði ekki gripið til sömu aðgerða. Segjum sem svo að Reykvíkingar yrðu óánægðir með leiðina sem er valin og ákvæðu í framhaldinu að banna ferðamönnum að koma til Reykjavíkur. Segjum sem svo að í kjölfarið af því birtust fréttir út um allan heim sem segðu að Reykvíkingar bönnuðu ferðamenn í Reykjavík vegna þess að þeir væru ósáttir við að reynt væri að stemma stigu við kynferðisofbeldi gegn börnum.
Værum við sátt við svona fréttaflutning? Þætti okkur hann sanngjarn og lýsandi fyrir ástæður óánægjunnar? Ekki það... Er nokkuð ástæða til að ætla að því sé öðruvísi farið með frumbyggja í Ástralíu þar sem nákvæmlega þetta gerðist?
Frétt af ruv.is:
Fyrst birt: 26.06.2007 14:12Síðast uppfært: 26.06.2007 14:13Ástralía: Frumbyggjar bregðast við áætlun stjórnvalda
Ástralskir frumbyggjar hafa hótað að meina ferðamönnum aðgang að fjallinu Uluru vegna nýrrar áætlunar ástralska stjórnvalda sem stemma á stigu við misnotkun á börnum í samfélögum frumbyggja. Fjallið Uluru er eitt helsta aðdráttaraflið í augum margra sem ferðast um Ástralíu.Í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir þarlend yfirvöld kemur fram að misnotkun sé mjög útbreidd í samfélögum frumbyggja. Við það bætist þættir eins og fátækt, áfengis og eiturlyfjaneysla sem auki enn á þennan vanda og þá er einnig fundið að heilbrigðis- og félagsþjónustu innan samfélaganna. Þó sumir frumbyggjaleiðtogar hafi lýst ánægju sinni með tillögur stjórnvalda segja aðrir þær óframkvæmanlegar. Hinir sömu fullyrða að þessar áætlanir séu í raun dulbúin leið ríkisstjórnarinnar til að ná á ný yfirráðum yfir landsvæðum frumbyggjanna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.6.2007 | 11:21
Getum betur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
25.6.2007 | 23:04
Af hverju ekki sérfræðiþekking?
Nú er búið að auglýsa laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Auglýsinguna má lesa hér. Það sem vekur athygli mína er að á sama tíma og í gangi eru auknar kröfur um að þeir sem starfi að jafnréttismálum hafi aflað sér þekkingar á málaflokknum, þá er engin krafa um sérfræðiþekkingu í auglýsingunni. Vona nú samt að þetta þýði ekki að það verði bara einhver ráðinn - með sérþekkingu á bönunum eða eitthvað álíka. Ætla sem sagt að vera bjartsýn þangað til annað kemur í ljós... en finnst það ekki eins faglegt og það ætti að vera að gera ekki kröfu um þekkingu á jafnréttismálum. Er næstum eins og að auglýsa eftir lögfræðingi án lögfræðimenntunar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.6.2007 | 12:17
Innbyrðum 2 kg af eiturefnum árlega...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
24.6.2007 | 16:30
Frelsinu fylgir ábyrgð
![]() |
Einkadansinn líður undir lok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
23.6.2007 | 23:48
Sjúklingum skóflað út á land
Nú berast fréttir af því að einhver hafi fengið þá "brilliant" hugmynd að flytja sjúklinga af höfuðborgarsvæðinu út á land. Ég velti fyrir mér hvernig á að velja sjúklingana? Þá sem eiga enga aðstandendur? Þá sem er illa við aðstandendur sína eða aðstandendum er illa við þá? Þá sem eru dauðvona? Þá sem eru alvarlega veikir eða þá sem eru bara með eitthvað smá svo þeim er enginn vorkunn þó enginn komi og styðji við bakið á þeim í veikindum? Börn svo foreldrar geti einbeitt sér ótruflað að vinnunni? Aldraða sem eru of veikburða til að mótmæla??? Bara spyr.
Önnur lausn væri að hækka laun hjá hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum og sjúkraliðum svo þær vilji vinna á spítalanum.
Stundum hef ég á tilfinningunni að það sé verið að rústa heilbrigðiskerfinu viljandi svo það verði hægara um vik að einkavæða!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
22.6.2007 | 09:46
Til hamingju

Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
22.6.2007 | 01:58
Sármóðguð!
Þrátt fyrir leit á vef Háskólans í Reykjavík tókst mér ekki að finna rannsóknina sem var kynnt á 19. júní og er að gera allt vitlaust. Ég ætla að tjá mig sem minnst um þá rannsókn þangað til ég er búin að skoða framkvæmdina og spurningar. Eina sem ég ætla að segja þangað til að er að það ætti ekki að koma neinum á óvart að konur taki þátt í að viðhalda kynjakerfinu. Það eru engin ný sannindi og allir sem hafa tekið einhverja kynjafræði ættu að vera með það á hreinu.
Hins vegar er annað sem gerist þegar svona rannsókn er birt. Hið óskilgreinda batterí tekur við sér og nú má sjá frasann "konur eru konum verstar" út um allt. Ég hef oft bloggað um þennan frasa áður, enda fer hann rosalega mikið í taugarnar á mér. Ég hef reynt að útskýra þetta en fann nýjan vinkil á þessu áðan. Ég fór að skoða meiðyrðakaflann í hegningarlögum. Þessa klausu finnst mér fínt að draga fram í tilefni af "konur eru konum verstar" umræðunni:
233. gr. a. Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á [mann eða hóp manna]1) vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, [kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar]1) sæti sektum 2) eða fangelsi allt að 2 árum.
Þarna vantar auðvitað tilfinnanlega kynferði í upptalninguna... Ef kynferði væri með í þessar klausu held ég að það væri vel hægt að rökstyðja að frasinn "konur eru konum verstar" sé rógur og smánun gagnvart konum.
Hér er önnur grein:
234. gr. Hver, sem meiðir æru annars manns með móðgun í orðum eða athöfnum, og hver, sem ber slíkt út, skal sæta sektum eða [fangelsi]1) allt að 1 ári.
Svo er líka þessi klausa:
Ef maður dróttar að öðrum manni einhverju því, sem verða myndi virðingu hans til hnekkis, eða ber slíka aðdróttun út, þá varðar það sektum eða [fangelsi]1) allt að 1 ári
Ef við ímyndum okkur nú í eitt augnablik að konur séu maður... Virðing kvenna bíður hnekki við að segja að þær séu öðrum konum verstar. Ég er líka sármóðguð vegna þess að ég þekki svo margar stórkostlegar konur sem eru alltaf að gera stórkostlega hluti fyrir hver aðra.
Anyways... vona að fólk íhugi að með því að nota þennan frasa er verið að taka þátt í að viðhalda ríkjandi ástandi og kynjakerfinu - rétt eins og ef konum eru ráðlögð lægri laun... og staðreyndin er bara sú að við tökum öll þátt á einhvern hátt. Síðan er bara spurning hvort við viljum leggja eitthvað á okkur til að breyta... Að henda út þessari ósönnu klisju um grimmd og illvirki kvenna gagnvart hvor annarri væri gott skref.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (57)
21.6.2007 | 18:00
Um hlýðna karla og konur...
Takk fyrir allar hugmyndirnar um hvað er til ráða í jafnréttismálum. Ég hefði nú samt kannski átt að taka það fram í færslunni að ekki yrði hlustað á neinar hugmyndir sem ganga út á að halda KJ eða vera stilltar Ég er reyndar á því að ein ástæðan fyrir hægum framgangi er vegna þess að við erum allt of stilltar. Ingibjörg Sólrún talaði um hlýðni kvenna í 19. júní ræðunni sinni og það er nokkuð til í því. Allt of margar konur gangast þegjandi og hljóðalaust undir karlaveldið og mega ekki til þess hugsa að vera nokkurn tímann á öndverðum meiði við karlmann... Þetta er kannski einhver hræðsla við eigin skoðanir. Í það minnsta held ég að sjálfsbjargarviðleitni spili stóran þátt. Það getur verið þægilegra að grafa vandamálin, láta eins og þau séu ekki til, setja bara upp brosið og vera ligeglad í öllu. Lynda vel við alla, taka aldrei fighting og þá lítur allt út fyrir að vera slétt og fellt. Vandamálið er að það er bara á yfirborðinu. Ég held að ef við gætum skapað þannig andrúmsloft að konur geti óhræddar sagt skoðanir sínar - eða bara skoðað og fundið út hvað þeim raunverulega finnst - án þess að verða fyrir heiftarlegum nafnaköllum og persónulegum blammeringum þá myndi margt breytast. Að sama skapi þá trúi ég því líka að það sé alveg hægt að taka fighting og vera samt vinir. Talandi út frá eigin reynslu þá get ég alveg vottað að það er mjög frelsandi að fylgja sinni eigin sannfæringu og komast að því hvað konu raunverulega finnst um málin. Það er farsælast að koma til dyranna eins og maður er klæddur. Jörðin ferst ekki við það. Í versta falli eignast maður nýja vini...
En... having said that. Ef konur eru hlýðnar við karlaveldið þá er ekki annað hægt en að segja að karlar séu enn hlýðnari við það. Mun færri karlar en konur þora að bjóða karlaveldinu birginn! Er þá ekki við hæfi að spyrja næst hvað karlar geti gert til að bjóða karlaveldinu birginn? Getur verið að fullt af atriðunum yrðu þau sömu og það sem konur geta gert. Það er allt í lagi. Ég hlakka allavega til að heyra sögur af karlmönnum sem rífast um að fá að vaska upp, skúra, skrúbba og bóna ... og skipta á kúkableijum! Ekki hægt að ætlast til að karlmenn fái öll þessi hlutverk sjálfkrafa upp í hendurnar án þess að þurfa að hafa fyrir því sjálfir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Tenglar
Félög og fleira
- Femínistafélag Íslands Uppáhaldsfélagið
- Kynjafræði HÍ
- RIKK
- the f-word
- Bríet
- Kvenréttindafélagið
- Kvennasögusafn
- Femínistafélag Akureyrar
- Ungfemínistar
- Kvennaslóðir
- http://
Í uppáhaldi
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nota bene
Stopp
Stopp
Spurt er
Bloggvinir
-
konur
-
soley
-
vglilja
-
salvor
-
andreaolafs
-
kristinast
-
thelmaasdisar
-
ingibjorgelsa
-
truno
-
bryndisisfold
-
vefritid
-
poppoli
-
hlynurh
-
margretsverris
-
annapala
-
hafmeyja
-
ugla
-
halla-ksi
-
kamilla
-
ingibjorgstefans
-
feministi
-
stebbifr
-
hrannarb
-
aas
-
bjorkv
-
ibbasig
-
ingo
-
matthildurh
-
emmus
-
svartfugl
-
gattin
-
saedis
-
gurrihar
-
afi
-
kennari
-
eddaagn
-
steindorgretar
-
fanney
-
brisso
-
gudfinnur
-
rungis
-
730
-
killerjoe
-
kosningar
-
id
-
orri
-
kjoneden
-
halkatla
-
vilborgo
-
tommi
-
jenfo
-
tryggvih
-
heiddal
-
almapalma
-
hrafnaspark
-
fletcher
-
klaralitla
-
lauola
-
maple123
-
ruthasdisar
-
alfholl
-
heidathord
-
siggisig
-
kjarninn
-
bjorgvinr
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
paul
-
arh
-
bleikaeldingin
-
astamoller
-
bene
-
bergruniris
-
hrolfur
-
hrafnhildurolof
-
temsaman
-
oskvil
-
handsprengja
-
baddinn
-
begga
-
abg
-
elvabjork
-
lks
-
super
-
athena
-
perlaheim
-
thorak
-
hallarut
-
malacai
-
almaogfreyja
-
volcanogirl
-
sabroe
-
astan
-
bjargandiislandi
-
rustikus
-
evags
-
sannleikur
-
zeriaph
-
hildurhelgas
-
drum
-
minos
-
kerla
-
stjaniloga
-
larahanna
-
lotta
-
mariataria
-
manisvans
-
sigurjonsigurdsson
-
joklasol
-
snj
-
saethorhelgi
-
tara
-
toshiki
-
sverdkottur
-
ver-mordingjar
-
tharfagreinir
-
thorsteinnhelgi
-
thuridurbjorg