Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Góður kinnhestur???

Er kinnhestur einhvern tímann góður? Þeir hjá Bílabúð Benna virðast vera þeirrar skoðunar. Í dag birtist frá þeim heilsíðu auglýsing í Viðskiptablaðinu. Texti auglýsingarinnar er: "Slær þig eins og góður kinnhestur, frá fallegri konu."

Mér finnst alveg stórmerkilegt að þeir vilji tengja ímynd Porsche við ofbeldi - og hefja það upp til skýjanna. Reyndar mjög margt í þessum texta sem er áhugavert að stúdera. Til dæmis þessi glamúruppbygging á ofbeldi. Sem er út í hött. Ofbeldi er ekki glamúr. Punktur. Er ekkert flóknara en það. Síðan er hægt að spá í kinnhestinn sjálfan - kona sem slær karl. Er það meining þeirra hjá Bílabúð Benna að engin ógn felist í kinnhesti frá fallegri konu? Líta þeir á kinnhestinn sem forleik að einhverju öðru? 

Anyways... finnst þessi auglýsing gjörsamlega glórulaus og þeim hjá Bílabúð Benna til minnkunnar. Mig langar allavega ekki í Porsche sem lemur! En þig? 

Screenshot_8


Einhver í stuðandi tuði?

Stundum velti ég því fyrir mér hvort við ættum ekki að taka þessu blessuðu þjóðarleiðtoga til fyrirmyndar í jafnréttisbaráttunni! Þeir eiga jú að vera þeir hæfustu í jobbið, er það ekki? FootinMouth Erum við ekki með allt of mikla linkind og ættum bara að láta hart mæta hörðu? 

Finnst annars Bretar og Bandaríkjamenn vera í einhverju stuðandi tuði þessi misserinn... er verið að reyna að koma á stríði?


mbl.is Rússar reka fjóra breska ríkiserindreka úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha???

fhmjan_smallBlaðið flytur í dag frétt af konu sem var niðurlægð í strætó af strætóbílstjóranum. Hann skipaði henni að skipta um sæti því brjóstaskoran sem hann sá í baksýnisspeglinum hafði svo truflandi áhrif á hann að hann gat ekki einbeitt sér að akstrinum. Hann kallaði því til hennar, eða öskraði, að því er segir í fréttinni í Blaðinu, að ef hún ekki færði sig myndi hann henda henni út úr vagninum. Konan færði sig en upplifði mikla niðurlægingu við allt þetta. Strætisvagnafyrirtækið ákvað að standa þétt við bakið á strætóbílstjóranum sem var óhæfur til aksturs. 

Tveim blaðsíðum framar í Blaðinu er auglýsing frá Kraftvélum. Fyrirsögnin er "Leitaðu til sérfræðinga þegar útsýn skiptir verulegu máli." Myndefnið er jarðýta á strönd og bikiníklæddar konur liggja eins og hráviði allt í kring. Miðað við strætóbílstjórann væri nú kannski betra að selja jarðýtur sem erfitt er að sjá út um? Augljóslega hefðu konurnar svo truflandi áhrif á jarðýtukallana að þeir verði ófærir um að sinna vinnunni sinni. Er það ekki? Erum við annars ekki enn á púritönskum tímum þar sem karlmenn mega ekki sjá í bert hold án þess að verða fyrir verulegum og alvarlegum truflunum á getu og hæfni? FootinMouth

Moral of the story? Best er að setja allar konur í búrkur svo þær trufli ekki karlmenn?

Moral of the story? Af hverju ekki að setja hálfbera karla út um allt svo konur séu ekki einu skrautmunirnir í samfélaginu? (mynd sett með svo fólk geti betur metið þennan móral!)

Moral of the story? Af hverju ekki að hætta hlutgervingu og líkamsáráttu og njóta þess í stað manneskjunnar?


Slatti af korni

Áætlað er að um 10 kg af korni þurfi til að framleiða 1 kg af nautakjöti. Þennan fróðleik hef ég úr bókinni The Rough Guide to Ethical Shopping eftir Duncan Clark. Mjög áhugavert að glugga í þessa bók þó ekki hafi ég enn lagst yfir hana og lesið spjaldanna á milli. Ég er heldur ekki enn orðin grænmetisæta... 

Lærdómur gærdagsins og Jafnréttisstofa

Það tekur tvo og hálfan tíma að setja saman 6 skúffu kommóðu frá IKEA ef 2 vinna verkið. Innifalið í því er samsetning, 1 kaffipása og þrif. Burður og bakverkir ekki talið með!

**

Hlakka ógó mikið til að sjá hvaða kona verður ráðin framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. Smile Staðsetning Jafnréttisstofu er líka alltaf til umræðu. Reykjavík eða Akureyri? Skiptar skoðanir á því eins og öðru. Helstu rökin með því að stofan eigi að vera í Reykjavík eru að eitt af hennar hlutverkum er að vinna náið með stjórnsýslunni - og stjórnsýslan er í Reykjavík. Fjarlægðin gerir ekki bara fjöllin blá heldur einnig Jafnréttisstofu erfiðara um vik að vera í hringiðu jafnréttismála. Ég segi allavega fyrir mína parta að samstarfið og samskipti við Jafnréttisstofu hefðu pottþétt orðið meiri ef hún hefði verið í höfuðborginni. Sumir vilja meina að flutningur stofunnar út á land hafi verið liður í að draga úr vægi jafnréttismála - í það minnsta hafi það sýnt að þessi mál eru langt í frá í forgang.

Aðrir vilja meina að stofan sé jafn vel staðsett út á landi og að fólk úti á landi verði fyrir mismunun. Konur úti á landi verði t.d. fyrir tvöfaldri mismunun sem landsbyggðarkonur. 


Karlar, konur og börn - og ég

Alltaf finnast mér svona fyrirsagnir skrýtnar. Má túlka þær annars vegar svo að líf karlmanna séu minna virði en kvenna og barna og hins vegar að það sé karlmannsverk að verja líf kvenna og barna - jafnvel með sínu eigin. Að mínu mati er þetta úreltur hugsunarháttur sem á vel heima í kynjaskiptu karlrembuþjóðfélagi... en á illa heima í jafnréttissinnuðu samfélagi. Miðað við stöðu jafnréttismála er samt kannski ekki skrýtið að þetta lifi enn! 

**

Upplýsingaskyldan bendir síðan á lesbók Moggans í dag. Þar erum við stöllur, Auður Magndís og ég, í hlutverki lesara og glápara. Ég er glápari og kem hér um bil til dyranna eins og ég er klædd. Ljósmyndarinn mætti hálftíma of snemma - þegar ég var um það bil að skella mér í sturtu og var enn í jogginggallanum. Ég hljóp upp og skipti um föt en verð að segja að myndin er einkar lýsandi fyrir mig - lítið pjatt og prjál og soldið kaós í gangi. Þegar ljósmyndarinn var farin uppgötvaði ég að ég var enn með stýrurnar í augunum - sést samt ekki á myndinni. Ég er pínku hrifin af svona óreiðumyndum í fjölmiðlum. Wink Þó skiptir öllu meira máli hvað við stöllur höfum að segja - ég um sjónvarpsþættina The L word og Auður Magndís um skaðsemi hlutleysis! Endilega kíkið á... 


mbl.is Konur og börn meðal látinna í Rauðu moskunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott

Gott að heyra að dómi héraðsdóms Reykjavíkur frá síðustu viku hefur verið áfrýjað. Þá er enn von til að réttlætið nái fram að ganga og að íslenskir dómstólar komist að þeirri niðurstöðu að nauðgun er glæpur.

 

 


Fróðleikur dagsins

Ef fólk er úti allan daginn án þess að nota sólarvörn er hætta á sólbruna. 

Það er vont að mæta á síðustu stundu á rangan stað þegar fólk er hjólandi.


Líka klukkuð!

Beta er að hrella vinkonur sínar og vini um þessar mundir með klukki... og af því að ég geri alltaf eins og Beta segir mér að gera þá koma hér 8 atriði um mig sem fáir vita - án gríns!

** 

1. Er búin að vera á leiðinni að gifta mig í mörg ár en strandar á að ekki fæst niðurstaða í framkvæmdina. Skemmtilegasta hugmyndin so far er að stinga af til Las Vegas og láta Elvis Presley eftirhermu pússa okkur saman í gegnum bílalúgu! Wizard

2. Hef fordóma gagnvart Las Vegas. Því miður þar sem #1 gengur ekki upp fyrir vikið... Devil

3.  Ég er ekki karlahatari. Heart

4. Ég brosi oft á dag til karlmanna sem ég hef engan áhuga á að sofa hjá. Neyðist kannski til að endurskoða þessa syndsamlegu hegðun í kjölfar dóms héraðsdóms í síðustu viku. Bandit

5. Ég þoli ekki að kaupa skó. Sick

6. Ég er í mótþróa gegn hópsálinni og ætla því ekki að klukka 8 einstaklinga heldur færri... Halo

7.  Ég sagaði slatta af spýtum í handrið um helgina - og ég á hamar. Happy

8.  Fyrsti bíllinn minn var Citroen sem hét Litla gula hænan. Stundum þurfti að koma honum í gang með skrúfjárni. Sideways

**

Ég ætla að klukka:

Kristínu Ástgeirsdóttur 

Erlu Hlyns

Rósina

Byltingarsinnann

Kókoshnetuna


Útungarvélar?

Þessi frétt hljómar eins og litið sé á konur sem útungunarvélar. Talandi um forræðishyggju og allt það... Af hverju þykir sjálfsagt mál að ríkisstjórnir reyni að stýra fjölda barna hjá fólki með verðlaunum eða refsingum? Eru barneignir hluti af þegnskylduvinnu? Bara spyr... Er sjálf hlynntust því að skapað sé fjölskylduvænt umhverfi þar sem kynjaskiptingin er jöfn og fólki sé ekki refsað fyrir barneignir. Verðlaunafé verður kannski óþarfi ef refsingar eru afnumdar? Eins og stendur eru barneignir notaður sem refsivöndur á konur og taldar útskýra slatta af því misrétti sem konur eru beittar - s.s. lægri launum fyrir sömu störf og takmarkað aðgengi kvenna að völdum og áhrifum. Fjölskylduvænt þjóðfélag refsar að sjálfsögðu ekki konum fyrir barneignir með því að borga þeim lægri laun, halda þeim frá völdum og dæma þær til ólaunaðra og vanþakklátra heimilisstarfa fyrir vikið... Verðlaunafé ofan á þann pakka undirstrikar enn frekar hversu litlu máli langanir, hæfni og réttindi kvenna skipta suma í raun og veru litlu máli. 
mbl.is Ungar konur í Noregi verði verðlaunaðar fyrir að eignast barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Katrín Anna Guðmundsdóttir
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Femínisti og fleira
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 332459

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband