Gleðilegt nýtt ár

Þjóðin var ekki á borgarafundinum um daginn. Þjóðin var ekki að mótmæla fyrir utan Hótel Borg í dag. Þjóðin mótmælir ekki. Punktur. Hver er þá þjóðin? Þessi spurning hefur leitað á mig en auðvitað lá svarið í augum uppi allan tímann. Þjóðin eru peningamenn og stjórnmálamenn. Við hin erum bara skríllinn ;) Þetta útskýrir auðvitað margt. 

Gleðilegt nýtt ár. Óska öllum farsældar á komandi ári. Takk fyrir allt gamalt og gott.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Munum að Solla stirða og Geir hinn ókúgaði eru hin táknræna þjóð.

Björgvin R. Leifsson, 31.12.2008 kl. 21:07

2 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Þjóðin er t.d. það fólk sem kaus xD og xS í síðustu kosningum? Stór meirihluti amk.  Vonandi fer ekki einhver skipulagslaus skríll að hafa áhrif á stjórn landsins.  Hver vill það?  Um að gera að láta skoðanir í ljós en lýðræðið er samt þrátt fyrir galla verðmætara en einhverjir tapaðir peningar í bankahruni.

Þorsteinn Sverrisson, 1.1.2009 kl. 14:40

3 Smámynd: Viðar Eggertsson

Þetta var kjarnyrtur og vel orðaður pistill.

Berjumst gegn óréttlæti ef við erum beitt óréttlæti. Látum ekki ráðamenn ákveða upp á sitt eindæmi hvernig og hverju við megum mótmæla. Handrit þeirra og leikstjórn með líf fólks hefur sýnt sig að er röð hraplegra mistaka, sem hafa verið alltof dýru verði keypt - af okkur.

Komum þeim burt úr leikstjórnarstólnum. Við "skríllum" eigum sviðið.Byrjum árið með nýtt handrit sem við skrifum sjálf.

Gleðilegt ár mín kæra.

Viðar Eggertsson, 1.1.2009 kl. 17:21

4 Smámynd: Viðar Eggertsson

áttui auðvitað að vera "skríllinn" - biðst velvirðingar á ritvillu.

Viðar Eggertsson, 1.1.2009 kl. 17:22

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Við erum óþjóðalýður.  Það er nokkuð ljóst Kata mín.

Og gleðilegt ár.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.1.2009 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Anna Guðmundsdóttir
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Femínisti og fleira
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband