Yes!

8 konur og 3 karlar kjörin í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins um helgina. Þetta hlýtur að teljast saga til næsta bæjar og full ástæða til að óska Sjálfstæðisfólki til hamingju með þetta. Gott hlutfall kvenna í miðstjórn vegur upp á móti skorti kvenna í valdastöðum á vegum flokksins. 

Í borgarstjórn sitja 4 karlar og 3 konur sem borgarfulltrúar á vegum flokksins. Á alþingi eru 23 þingmenn Sjálfstæðisflokksins, 16 karlar og 7 konur. Ráðherrar eru 6, þar af einungis 1 kona. Útlit fyrir komandi alþingiskosningar er ekki gott varðandi kynjahlutföll flokksins. 5 karlar og 1 kona leiða lista flokksins og úrslit prófkjara voru ekkert til að hrópa húrra fyrir þegar jafnrétti kynjanna er haft til hliðsjónar. Flokksmenn virðast þó sjá að þetta er eitthvað til að skammast sín fyrir og hafa vaknað aðeins á landsþingu og reynt að bæta úr - sem er frábært, enda hafa skoðanakannanir sýnt að flokkurinn nýtur mun meira fylgis meðal karla en kvenna. 

Óska Sjálfstæðisflokknum til hamingju með þetta. Vona að flokkurinn bíði ekki skaða af öllum þessa kvennafans í miðstjórninni Wink og fari vonandi bráðum að jafna kynjahlutföllum á öðrum vígstöðum. 


mbl.is Kjartan fékk flest atkvæði í miðstjórnarkjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TómasHa

Konum hefur nú gengið vel innan sjálfstæðisflokksins, hvort sem er þetta eða í undanförnum prófkjörum.

TómasHa, 15.4.2007 kl. 19:59

2 Smámynd: Katrín Anna Guðmundsdóttir

Híhí. Þú ert nú bara soldið fyndinn!

Katrín Anna Guðmundsdóttir, 15.4.2007 kl. 20:08

3 identicon

Já, kraftaverkin gerast enn  En svo er það spurning hvort þetta virkar sem skyldi þegar mótívið að baki er kannski fyrst og fremst að plástra eftir prófkjörin. En við verðum bara að vona það besta

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 15.4.2007 kl. 20:54

4 Smámynd: Guðmundur Örn Jónsson

Það verður nú seint sagt að Sjálfstæðisflokkurinn sé konum hliðhollur, en ég held að þetta sé rétt hjá Önnu Ólafsdóttur að kosningin í miðstjórnina megi túlka sem einhverskonar plástur á þá skammarlegu útreið sem konur fengu í prófkjörum Sjallanna.  Í sjálfu sér er ástandið engu betra í Samfylkingunni, þar er það bara í einu kjördæmi sem kona leiðir listann og það er í Reykjavík-suður þar sem Ingibjörg er í fyrsta sæti.  Spurning hvort VG séu eini sanni jafnréttisflokkurinn.

Guðmundur Örn Jónsson, 15.4.2007 kl. 21:40

5 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Góður punktur Guðmundur Örn!

arh

Ásgeir Rúnar Helgason, 15.4.2007 kl. 22:08

6 identicon

Alveg sammála Guðmundi Erni varðandi prófkjör Samfylkingar. Velti upp ákveðnum punktum um það í þessu bloggi. Í þessum efnum er staðan greinilega best hjá VG.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 15.4.2007 kl. 22:30

7 Smámynd: Gylfi Björgvinsson

Mér  finns  þið  vera  að  hugsa  þetta  á  rangan  hátt. Kynjahlutfall í stjórnmálum  er  að mínu  mati  ekki bundið  við  í  hvaða  flokk  fólk  er heldur  frekar hversu  t.d.  konur  eru  duglegar  að koma  sér  á  listana.  Mér  finnst það beinlínis  asnalegt að  konur  séu á  framboðslista   bara af því  þær   eru  konur, til að komast á listana verður  fólk að  hafa  eitthvað  að  segja og  gera sem  almenningur  treystir þeim  til. Ég  held  að í  sumum  flokkum  séu  konur  ekki nægjanlega  duglegar að  koma  sér  áfram. og  ég  held  líka  að það  hafi ekkert með  plástur  að gera,  svo  einfallt  er nú  þetta 

Gylfi Björgvinsson, 15.4.2007 kl. 22:43

8 Smámynd: Katrín Anna Guðmundsdóttir

Gylfi ég held þú sért nú bara sjálfur að hugsa þetta rangt... Lýðræði getur ekki orðið nema bæði kyn taki jafnan þátt í lýðræðinu. Kyn hefur mun meiri áhrif á líf einstaklinga heldur en t.d. póstnúmer. Ég er t.d. mjög ósátt við að búa í þjóðfélagi þar sem karlar hafa meirihluta valds hvert sem litið er... óþolandi, gjörsamlega! 

Gengi kvenna í stjórnmálum hefur ekkert með það að gera að konur séu svona latar og óduglegar, eins og þú segir. Kerfið er hannað af körlum, utan um líf og aðstæður karla... þar er t.d. ekki tekið tillit til mæðra - hvort sem þær eru einstæðar eða í sambandi - enda fellur meirihluti fjölskylduábyrgðar á konur... 

Það eru ekki konur sem eru gallaðar heldur kerfið sem er gallað... skiljú?

Ps. Varðandi kynjahlutföll þeirra sem leiða lista:

XD = 5 karlar, 1 kona

XS = 5 karlar, 1 kona

XB = 3 karlar, 3 konur

XV = 4 karlar, 2 konur

XF = 5 karlar, 1 kona

Veit ekki hvernig þetta er hjá nýjum framboðum en samkvæmt þessu er það Framsókn sem hefur vinninginn í jöfnu kynjahlutfalli og VG í öðru sæti.  

Katrín Anna Guðmundsdóttir, 15.4.2007 kl. 22:56

9 Smámynd: Margrét Elín Arnarsdóttir

Þetta er nú ekkert nýtt hjá Sjálfstæðisflokknum. Vil benda þér á það að á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins, 2005, voru kosnar 9 konur og 2 karlar í miðstjórn. Konur eiga auðvelt með að komast áfram hjá Sjálfstæðisflokknum þegar þær sækjast eftir því, eins og þær gera iðulega í miðstjórn.

Margrét Elín Arnarsdóttir, 15.4.2007 kl. 23:05

10 identicon

Úbbs! Ljótt af mér að gleyma Framsókn í þessu dæmi  - En kannski verður mér fyrirgefið af því að í dag breytti ég þemalitnum á blogginu mínu úr rauðu í grænt  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 15.4.2007 kl. 23:08

11 Smámynd: Katrín Anna Guðmundsdóttir

Hmmmm - þannig að þarna var um afturför á hlut kvenna hjá Sjálfstæðisflokknum að ræða!??

En Margrét... það er ekki nóg að fylla miðstjórnina af konum - þær þurfa að vera annars staðar líka og þar á Sjálfstæðisflokkurinn sér afar slæma sögu. Hann á sér því miður líka marga bræðraflokka í þessum efnum... og ég held svei mér bara þá að það sé enginn flokkur sem ég veit um þar sem konur hafa ekki alltaf verið í minnihluta valds... ef undan er skilið Kvennalistinn og Kvennaframboðin! 

Katrín Anna Guðmundsdóttir, 15.4.2007 kl. 23:11

12 Smámynd: Guðmundur Pálsson

Já. Katrín Anna þetta er mjög mikilvægt fyrir framtíð sjálfstæðisflokksins og landsins alls. 8 konur og 3 karlar. Þetta mun gera gæfumuninn fyrir ýmsa hópa þjóðfélagsins, börn og gamalmenni, pípara, sjómenn og iðnaðarmenn. Já, og lífskjör manna almennt. Hagstjórn og framtiðarhugsun. Við verðum miklum hæfari til að takast á við hlutina. einmitt vegna þessa: 8 konur og 3 karla.  Ég er hógvær en ég verða samt að segja að  helst hefði ég viljað hafa það 9 konur og 2 karla - en látum þetta duga. Áfram konur, áfram röskar og góðar konur! Og til hamingju með þennan stórsigur.

Með góðri sjálfstæðiskveðju.

Guðmundur Pálsson, 15.4.2007 kl. 23:11

13 Smámynd: Björn Heiðdal

Kæra Katrín,

Þú hugsar greinilega of mikið.  Talar um eitthvað kerfi sem er hannað af körlum og tekur ekki tillit til einstæðra mæðra o.s.fr.  Hvað villt þú að "kerfið" geri fyrir einstæðar mæður.  Vaski upp og skipti á börnunum?

Fólk með kerfisvillu bíður gapandi eftir að ríkið mati það.  Síðan rífst það og skammast yfir því hvað maturinn var vondur.

Björn Heiðdal, 15.4.2007 kl. 23:19

14 Smámynd: Katrín Anna Guðmundsdóttir

Er þetta ekki dæmigert. Need I say more?

Katrín Anna Guðmundsdóttir, 15.4.2007 kl. 23:51

15 identicon

Mikið ofboðslega er ég orðinn leiður á þessari kynfærafetish hjá feministum.  Snýst öll þeirra veröld, hugsun og barátta um kynfæri?  Eru þessar kellingar ekki bara á kafi í klámi og viðlíka vibba? Það er eini geirinn annar sem mér dettur í hug sem eingöngu fókúserar á kynfæri og ekkert annað.

Brandur (IP-tala skráð) 16.4.2007 kl. 01:21

16 Smámynd: Katrín Anna Guðmundsdóttir

Brandur - FYI - að vera karl snýst um annað og meira en typpi og að vera kona snýst um annað og meira en bara píkur. Ef þú ert ekki búinn að gera þér grein fyrir því nú þegar.... þá ... já ... þá... spurning um að þú veltir því aðeins fyrir þér hvernig kyn hefur áhrif á allt okkar líf...

En ef þú ert svona leiður þá er auðvitað bara um að gera að loka eyrum, munni og augum og snúa sér að einhverju öðru... Viljum jú ekki að þú sért í eilífum sjálspyndingum!

Katrín Anna Guðmundsdóttir, 16.4.2007 kl. 03:01

17 Smámynd: TómasHa

Það er bara ekki rétt að Sjálfstæðisflokkurinn eigi eitthvað slæma sögu í þessum málum.   Þið eruð nú svo góðar í að reikna hlutföll, tékkaðu á því hversu gott hlutfallið var í seinasta prófkjöri.  Konur sem buðu sig fram og náðu bindandi kosningu.  

Þegar þetta er skoðað kemur ansi jákvæð mynd af hlut kvenna innan flokksins. 

TómasHa, 16.4.2007 kl. 08:45

18 Smámynd: Björn Heiðdal

Kæri Tómas.

Það verður að skoða sögu Sjálfstæðisflokksins frá byrjun og þá kemur allt önnur saga í ljós.  Síðan hafa ekki margar konur Sjálfstæðisflokksins orðið forsætisráðherrar ef ég man rétt.

Need I say more

Björn Heiðdal, 16.4.2007 kl. 09:39

19 identicon

Ágætt hjá mínum mönnum með að velja svona margar frambærilegar konur í miðstjórn.  Almennt séð vil ég segja að ef konur vilja fleiri konur í efstu sæti framboðslista, þá eiga þær að kjósa konur í þessi sæti en ekki að haga sér eins og "konur séu konum verstar".

Örninn (IP-tala skráð) 16.4.2007 kl. 09:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Anna Guðmundsdóttir
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Femínisti og fleira
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 332539

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband