Skin og skúrir

Fyrst sería #4 af 24 var ekki til á vídeóleigunni varð Little Miss Sunshine fyrir valinu. Scary movie, svo það sé orðað mildilega. Augljóslega er ég ekki fylgjandi fullorðins konusýningum en ég myndi samt ekki vilja banna þær. Ég held samt að ég væri alveg fylgjandi banni á fegurðarsýningum barna. Ég hef aldrei skoðað þetta fyrirbæri, vissi bara að litlu stelpurnar eru "grossly overdone" með meik-upi, hárgreiðslu og pífukjólum. Ef eitthvað er að marka myndina er þetta enn verra en ég bjóst við. Fölsk augnahár, brúnkumeðferð, hártoppar og sundfataatriði með pínkulitlum stelpum.

En þetta er ágætismynd. Ádeilan sett upp sem gamanmynd með nóg af drama... Uppáhaldssetningin mín úr myndinni er "Í skottinu á bílnum okkar" 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það sem er  virkilega scary við þessa mynd er að allar litlu stelpurnar í henni, nema aðal stelpan, eru/voru alvöru þátttakendur í svona keppnum og voru í sömu búningum og fluttu sömu atriði og þær gerðu í þeim keppnum sem þær tóku þátt í.

http://www.imdb.com/title/tt0449059/trivia 

Gummi A (IP-tala skráð) 15.4.2007 kl. 12:26

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Horfði á hana á föstudaginn, mér fannst hún stórfyndinn með beittri ádeilu! Af amerískri mynd að vera eða er hún ekki amerísk'?

Edda Agnarsdóttir, 15.4.2007 kl. 14:58

3 identicon

Fór í bíó og sá þessa ræmu með konunni. Ég hef ekki grenjað úr hlátri (bókstaflega) í bíó í áratugi, lokaatriðið er tærasta snilld - afinn veit hvað hann syngur...

www.blog.central.is/hgret (IP-tala skráð) 15.4.2007 kl. 16:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Anna Guðmundsdóttir
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Femínisti og fleira
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 332539

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband