Almennir mannasiðir

SAFT kennir börnum m.a. mannasiði á netinu. Hins vegar virðist ekki vanþörf á að sumir fullorðnir tileinki sér almenna mannasiði í samskiptum á netinu. Set þess vegna inn netorðin 5 frá SAFT:

1. Allt sem þú gerir á Netinu endurspeglar hver þú ert
2. Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig
3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er
4. Mundu að efni sem þú setur á Netið er öllum opið, alltaf
5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á Netinu 
 

Fólk sem er ófært um að setja skoðanir sínar fram á málefnalegan hátt heldur er með persónulegt skítkast og/eða hate speach er bent á að þeim er frjálst að halda sig annars staðar en hér. Þeim er líka bent á að mér er frjálst að fela athugasemdir og meina aðgang að fjörinu - sem mér finnst sérlega æskilegur fítus á þá sem ekki þora að koma fram undir nafni. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég held að við þurfum að útvíkka skilgreininguna á Godwin's Law til að vísa einnig til Osama bin Ladens og legg til að athugasemd GG verði þurrkuð út þar sem hún hefur ekkert með efni færslunnar að ofan að gera.

Silja (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 13:36

2 identicon

Mjög sammála.

Jón Gunnar Ásbjörnsson (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 14:46

3 Smámynd: Gísli Gíslason

Það væri þarft að kenna þessi ágætu boðorð, strax í grunnskóla ef ekki leikskóla.  Þett gæti verið Boðorðin 5 á öld ljósvakans.

Gísli Gíslason, 23.9.2007 kl. 20:41

4 Smámynd: Sigurður Jökulsson

Þetta eru flott boðorð. Er sammála Gísla að foreldrar, og/eða kennarar ættu að kenna æskunni þessi boðorð til æskunnar áður en hún fer að tjá sig á netinu. Það er nefnilega greinilegt að margir hafa ekki tileinkað sér þessi boðorð í sínum tjáskiptum.

Sigurður Jökulsson, 25.9.2007 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Anna Guðmundsdóttir
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Femínisti og fleira
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 332852

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband