Er ekki hægt að leggja inn beiðni um beina útsendingu?

Mér fannst það feilspor hjá Skjá 1 í gær að slaufa hinum sívinsæla Dr. House fyrir enn eina konusýninguna - sem ég er viss um að flestir aðdáendur doktorsins finnst með hallærislegustu fyrirbærum í heimi. Held það segi sig sjálft að konur sem heillast af hinum snjalla heila úrilla doktorsins eru ekkert að fara á límingunum yfir að horfa á stelpur keppa í því hver er sætust... 

Hins vegar þætti mér öllu snjallari leikur að Skjár 1 sýndi frá Óbeislaðri fegurð í beinni! Hef reyndar ekki hugmynd um hvað er á dagskrá kl. 19:30 á miðvikudögum en sennilegast er það einhver grínþátturinn sem má bara bíða betri tíma... Verst að ég er ekkert á leiðinni vestur í bráð þannig að ég missi af þessu en stóla bara á að fá fréttir á heimasíðunni þeirra og að fjölmiðlar geri þessu góð skil!!!


mbl.is Fjórtán keppendur í Óbeislaðri fegurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr Heyr, það var engin ástæða til að slaufa Dr. House fyrir hégóma sem engin hefur gaman að nema þær og kannski aðstandendur þeirra. En ég verð samt að segja eitt, first að skjár 1 var að sýna þessa afhverju sýna þeir ekki þá allar hinar forkeppnirnar. Finnst keppendur ekki sitja við sama borð þarna. Hver veit tildæmis hvað stelpurnar sem hafa unnið annarsstaðar á landinu heita?????? Legg til að skjár 1 geri okkur greiða og sleppi þessum gripa sýningum eða hafi það seint á nóttunni þannig að þetta sé ekki að taka úrvals efni eins og house frá okkur  

Gunnar Ingi (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 11:13

2 identicon

Já Skjár 1 hefur nú gert fleyri feilspor, t.d. VOD hjá þeim, þetta video on demand, þar má velja úr hinum ólíku Klámmyndum sem maður getur panntað sér og er þetta allt annað en ljósbláar myndir eins og þeir vildu meina, heldur gróft klám, og þetta er það sem þeir græða hvað mest á get ég sagt þér, fáir sem vita um þessa þjónustu fyrirtækisins...

loa (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Anna Guðmundsdóttir
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Femínisti og fleira
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband