7.6.2007 | 12:29
Stutt hæ
Fór í viðtal hjá Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í gær í tilefni þess að ég hætti sem talskona. Hér er viðtalið fyrir þá sem vilja hlusta.
Blogga meira um lífið eftir talskonuhlutverkið þegar ég hef betri tíma. Er að spá í hvort ég eigi ekki loksins að gerast róttækur femínisti
Þakka þeim sem mættu á aðalfundinn í gær fyrir frábæran fund. Er ennþá skellihlægjandi að uppistandi femínistamafíunnar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.6.2007 | 12:48
Fótbolti
Hér voru fjörugar umræður í hádeginu um fótbolta, þá sér í lagi danska fótboltann... Ef ég skil atburðarásina rétt þá hófst þetta á því að danskur landsliðsmaður kýldi mótherja sinn í kviðinn inn í vítateig þegar 3 mínútur voru eftir af leiknum - og staðan 3:3. Dómarinn dæmir víti (auðvitað!) og við það verður einn danski áhorfandinn svo reiður að hann stekkur inn á völlinn og ræðst á dómarann. Eftir smá stund ákveður dómarinn að flauta leikinn af og dæmir Svíum sigur.
Mér skilst líka að danski dómsmálaráðherrann hafi sagt að reka ætti ofbeldisfulla landsliðsmanninn úr liðinu. Búið er að kæra hann fyrir ofbeldið. Sem er auðvitað rökrétt. Það að vera inn á fótboltavelli á ekki að vera friðhelgur staður þar sem menn geta brotið lög án þess að það hafi afleiðingar. Ofbeldi á ekki að vera hluti af "leiknum".
Annars heyrðist mér að danski fótbloltaáhugamaðurinn sé kominn í felur. Búinn að biðja dönsku þjóðina afsökunar og allt í volli... enda honum kennt um tapið! Umhugsunarvert hvers vegna áfengi og fótbolti er svona samofið hjá áhangendum. Leikurinn löngu hættur að snúast um heilsu og hreysti. Núna er þetta atvinna og fyllerísbrölt... og í sumum tilvikum vændisbrölt, eins og vill verða í kringum stórmót, sbr heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi. Dregur óneitanlega úr gildi íþróttarinnar sem fjölskylduskemmtun eða eitthvað sem eflir og þroskar líkama og sál! Það á við hér, eins og um svo margt annað. Það sem manni þykir vænt um á maður að hugsa vel um og passa upp vel upp á svo það skemmist ekki eða glati tilgangi sínum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
5.6.2007 | 22:18
Tímamót

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.6.2007 | 13:13
Spennandi framundan
Framundan eru 2 fundir um vændismál. Hingað koma sterkir erlendir fyrirlesarar svo það er um að gera að grípa tækifærið og heyra hvað þær hafa spennandi að segja
Þessi ráðstefna verður á Grand Hótel á föstudaginn:
Fara vændi og virðing saman í jafnréttisþjóðfélagi?
Dagskrá
Kl.
13:00 Guðrún Jónsdóttir fundarstjóri og talskona Stígamóta opnar ráðstefnuna
13:10 Erindi pallborðsþátttakenda:
Rosy Weiss (Austurríki), forseti International Alliance of Women (IAW)
Marit Kvamme (Noregur), í stjórn Womens Front of Norway, Network Against
Prostitution and Trafficking in Women og FOKUS
Ágúst Ólafur Ágústsson (Íslands), alþingismaður
Rachael Lorna Johnstone (Skotland/Ísland), lektor við Háskólann á Akureyri
14:15 Umræður pallborðsþátttakenda
15:00 Kaffihlé
15:15 Umræður pallborðs og ráðstefnugesta
15:30 Niðurstöður frá pallborðsþátttakendum
Ráðstefnan fer fram á ensku, Aðgangur ókeypis, Kaffiveitingar
****
Fyrir þau sem búa fyrir norðan og vilja ekki skella sér til höfuðstaðarins er hægt að kíkja á annan fund á Akureyri:
Kvenréttindafélag Íslands, Jafnréttisstofa, Akureyrarbær og Háskólinn á
Akureyri standa fyrir opnum fundi í húsnæði Jafnréttisstofu að Borgum við
Norðuslóð á Akureyri, fimmtudaginn 7. júní kl. 12:00.
Erindi flytja:
* Rosy Weiss, forseti alþjóðlegu kvenréttindasamtakanna
International Alliance of Women (IAW): Kynning á IAW
* Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður KRFÍ:
Alþjóðasamstarf KRFÍ
* Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu:
Staða jafnréttismála
Fundarstjóri er Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og
mannréttindadeildar Akureyrarbæjar.
Fundurinn er öllum opinn og fer fram á ensku. Boðið verður upp á súpu og
brauð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.6.2007 | 00:45
Flott hönnun
Fór á mjög áhugaverðan fyrirlestur í dag um hlutverk hönnunar í verðmætasköpun þjóða. Fundurinn var byggður á skýrslu eftir Sóley Stefánsdóttur og Halldór Gíslason sem heitir "Hönnun - auðlind til framtíðar" og er hluti af samstarfsverkefni LHÍ og fleiri listaháskóla á Norður- og Eystrasaltslöndunum.
Í skýrslunni er farið yfir hvað hönnun er, hvernig hún skapar verðmæti, talað um samkeppnisforskot þjóða út á hönnun... meiri arð og velgengni hjá fyrirtækjum sem nota hönnun og tekin fjölmörg dæmi. Alls konar hönnun kemur við sögu. Grafísk hönnun, vöruhönnun og þetta sem við þekkjum - þ.e. allt það sem okkur dettur í hug þegar við hugsum um hönnun. Til viðbótar eru síðan fjölmargar nýjungar sem fólk tengir ekki endilega við hönnun. T.d. þjónustuhönnun. Slíkt er að ryðja sér til rúms í æ ríkari mæli. Sóley nefndi dæmi um þjónustu fyrir aldraða, fyrir sykursjúka og hönnun gegn glæpum. Sem dæmi um það síðastnefnda er stóll þar sem búið er að gera ráð fyrir að geta smeygt veskinu (ólinni) upp á setuna og koma þar með í veg fyrir að því verði stolið! Mjög smart. Læt fylgja með mynd af annarri hönnun sem mér finnst rosalega flott. Þetta er hönnun eftir Ragnheiði Ösp Sigurðardóttur - Ikea stóll sem borað er í og svo saumað... Mig langar í svona.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2007 | 09:47
Einmitt
Þetta er klassík:
"Feminism has fought no wars. It has killed no opponents. It has set up no concentration camps, starved no enemies, practiced no cruelties. Its battles have been for education, for the vote, for better working conditions.. for safety on the streets... for child care, for social welfare...for rape crisis centers, women's refuges, reforms in the law."
(If someone says) 'Oh, I'm not a feminist,' (I ask) 'Why? What's your problem?'"
- Dale Spender, author of For the Record: The Making & Meaning of Feminist Knowledge, 1985
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
3.6.2007 | 23:14
Til hamingju með Kvennaathvarfið
Kvennaathvarfið var 25 ára í gær. Athvarfið er skýrt dæmi um árangur í jafnréttismálum. Fyrir 25 árum gátu konur sem beittar voru heimilisofbeldi hvergi leitað. Nú fá þær bæði skjól og ráðgjöf. Í kjölfarið á Kvennaathvarfinu komu svo Stígamót. Kristín Ástgeirsdóttir skrifaði mjög flottan pistil um aldarfjórðungafmælið og ég er að hugsa um að vísa bara á hennar pistil í staðinn fyrir að skrifa meira sjálf. Enjoy!
Til hamingju með afmælið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.6.2007 | 13:59
Fallegt
Til hamingju með sjómannadaginn! Ég hef nú ekki tekið þátt í hátíðarhöldum öðruvísi en að hlusta á spurningakeppni um sjómannalög í útvarpinu í gær þar sem Gerður G. Bjarklind fór á kostum.
**
Ætla að deila með ykkur 2 stórgóðum ráðum sem ég fékk um helgina. Hið fyrra er að líta á það sem merki um sjálfstraust að þora að viðurkenna að vita ekki það sem öðrum finnst að þú eigir að vita... Hitt er að ef þú ert stressuð/aður yfir einhverju sem þú gerir að líta á það sem merki um að þú þjáist ekki af hroka... ennþá! Þessi ráð eru í boði gáfaðasta fólks landsins - 1 karls og 1 konu.
**
Ég fór í 50. afmæli á föstudaginn. Það var engin önnur en dr. Þorgerður Einarsdóttir, dósent í kynjafræði, sem náði þessum áfanga. Þorgerður er án efa einn mesti hugsuður landsins og einn uppáhaldsfemínistinn minn, enda stórkostleg kona. Afmælið var rosalega skemmtilegt og á eftir brá ég mér á Ölstofuna (reyklausu og fann enga tá-, svita- eða prumpufýlu.... eins og eigandinn hélt fram í fréttum. Kom meira að segja ágætlega ilmandi heim... í fyrsta skipti eftir Ölstofuferð og þakka ég það alfarið reykleysinu). En - á Ölstofunni varð ég vitni að einu afskaplega fallegu. Andlegri samkynhneigð karla, eins og Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður kallar það. Ég stóð og talaði við mann þegar annar maður vindur sér upp að okkur. Slær á öxl viðmælanda míns og rumsar upp úr sér lofræðu um hann. Það verður að segjast eins og er að þetta var afskaplega fallegt og til eftirbreytni. Karlar mættu í ríkari mæli vera tvíkynhneigðir á andlega sviðinu og gera þetta líka við konur
og konur geta einnig tekið þennan fallega sið upp í meira mæli...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.6.2007 | 11:49
Tilraun til ritskoðunar
Nýverið birtust fréttir af því að Hugo Chavez forseti Venesúela hefði látið loka stærstu einkareknu sjónvarpsstöðinni vegna þess að hún var honum ekki nógu hliðholl. Vildi hann meina að sjónvarpsstöðin ynni að því að koma honum frá völdum. Mótmælum svaraði hann með hótunum um að loka fleiri sjónvarpsstöðvum. Ég þori að veðja að margir Íslendingar hafi hugsað með sér "sjúkkit... svona gerist ekki á Íslandi. Hér höfum við einna hvað frjálsustu fjölmiðla í heimi!"
Nú er annað að koma á daginn. Viðbrögðin við grein Ísafoldar um vændi og mansal á Goldfinger og tengsl bæjarstjóra Kópavogs við staðinn hafa eiginlega staðið á sér - en samt ekki. Fréttaflutningur af málinu er furðanlega lítill. Hann er reyndar í takt við það sem við sem höfum staðið í þessari baráttu höfum lengi fundið fyrir. Það má ekki snerta á þessum málaflokki. Klámstefnan fræga nærtækt dæmi. Þar kafaði enginn fjölmiðill ofan í hvers lagt viðbjóð var um að ræða og sumir fjölmiðlar gengu svo langt að láta líta út fyrir að efnið hefði snúist um brjóst, bera bossa og skemmtiferð - þvert á allar staðreyndir í málinu sem voru augljósar hverjum þeim sem skoðaði málið aðeins.
Ég hef lengi furðað mig á umfjöllun fjölmiðla um þessi mál og skort á rannsóknarblaðamennsku hvað varðar að skoða málin ofan í kjölin. Þetta vandamál er ekki einskorðað við Ísland og víða um heiminn velta femínistar og aðrir því fyrir sér hvað veldur því að karlar sem sækja þessa staði virðast njóta verndar. Þeir eru hinir ósýnilegu. Þeir eru aldrei sýndir í fréttaumfjöllun um staðina - sem væri þó eðlilegt. Hins vegar eru stúlkurnar sýndar grimmt - dansandi fáklæddar upp við einhverja súlu. Jafnvel í fréttum um tengsl mansals við staðina. Fjölmiðlar eru til í að taka sjensinn á því - að eitthvert stúlkugrey sem er fórnarlamb mansals sé sýnd með þeim hætti í fjölmiðlum svo eymd hennar sé afhjúpuð fyrir alla - undir þeim formerkjum að þarna sé um "saklausa" skemmtun karlmanna að ræða. Skemmtun sem gengur út á kúgun, niðurlægingu og stundum þrælahald kvenna.
En aftur að þögguninni og samstöðu karlveldisins um að hreyfa ekki við þessum málaflokki. Kaupás ákveður að henda út Ísafoldarblaðinu eftir að það er komið í dreifingu. Greinin augljóslega ástæðan þrátt fyrir að Kaupás reyni að neita fyrir það. Það á að bullshitta almenning - því forráðamenn vita sem er að svona ritskoðun er ekki lýðræðisleg. Sama fyrirtæki vílar ekki fyrir sér að vera með klámblaðið Bleikt og blátt á afgreiðslukössum verslana sinna. Þeir þola bara ekki að fjallað sé um góðvin þeirra Gunnar I. Birgisson og hann afhjúpaður á þann hátt sem gert er í greininni. Samt sem áður vissu margir af því fyrir að Gunnar væri fastagestur á þessum stað. Það hefur lengi verið almannarómur... það hefur bara ekki verið skrifað um það í fjölmiðlum áður eða lagðar fram myndir því til sönnunar.
Í rauninni er það mjög stórt skref og framför fjölmiðla að skrifa loksins um þessi málefni með því að skoða þau ofan í kjölin. Þessi harkalegu viðbrögð til að stöðva greinina og síðan dreifingu á blaðinu eru kannski vísbending um hvers vegna ekki er meira fjallað um þessi mál á þessum nótum. Nú hefur Ísafold tekið af skarið og það er frábært. Mannlíf getur hins vegar varla verið þekkt fyrir að halda áfram að birta auglýsingar frá Goldfinger í blaðinu eftir að systurblað þess hefur fjallað um að þar eigi sér stað vændi og mansal... Eða hvað?
Vonandi verður þetta rætt af alvöru í framhaldinu og að fólk velti því fyrir sér hvað sé eiginlega í gangi fyrst valdhafar gera allt sem þeir geta til að þagga svona mál.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
1.6.2007 | 10:02
Reyklaus :)

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Félög og fleira
- Femínistafélag Íslands Uppáhaldsfélagið
- Kynjafræði HÍ
- RIKK
- the f-word
- Bríet
- Kvenréttindafélagið
- Kvennasögusafn
- Femínistafélag Akureyrar
- Ungfemínistar
- Kvennaslóðir
- http://
Í uppáhaldi
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nota bene
Stopp
Stopp
Spurt er
Bloggvinir
-
konur
-
soley
-
vglilja
-
salvor
-
andreaolafs
-
kristinast
-
thelmaasdisar
-
ingibjorgelsa
-
truno
-
bryndisisfold
-
vefritid
-
poppoli
-
hlynurh
-
margretsverris
-
annapala
-
hafmeyja
-
ugla
-
halla-ksi
-
kamilla
-
ingibjorgstefans
-
feministi
-
stebbifr
-
hrannarb
-
aas
-
bjorkv
-
ibbasig
-
ingo
-
matthildurh
-
emmus
-
svartfugl
-
gattin
-
saedis
-
gurrihar
-
afi
-
kennari
-
eddaagn
-
steindorgretar
-
fanney
-
brisso
-
gudfinnur
-
rungis
-
730
-
killerjoe
-
kosningar
-
id
-
orri
-
kjoneden
-
halkatla
-
vilborgo
-
tommi
-
jenfo
-
tryggvih
-
heiddal
-
almapalma
-
hrafnaspark
-
fletcher
-
klaralitla
-
lauola
-
maple123
-
ruthasdisar
-
alfholl
-
heidathord
-
siggisig
-
kjarninn
-
bjorgvinr
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
paul
-
arh
-
bleikaeldingin
-
astamoller
-
bene
-
bergruniris
-
hrolfur
-
hrafnhildurolof
-
temsaman
-
oskvil
-
handsprengja
-
baddinn
-
begga
-
abg
-
elvabjork
-
lks
-
super
-
athena
-
perlaheim
-
thorak
-
hallarut
-
malacai
-
almaogfreyja
-
volcanogirl
-
sabroe
-
astan
-
bjargandiislandi
-
rustikus
-
evags
-
sannleikur
-
zeriaph
-
hildurhelgas
-
drum
-
minos
-
kerla
-
stjaniloga
-
larahanna
-
lotta
-
mariataria
-
manisvans
-
sigurjonsigurdsson
-
joklasol
-
snj
-
saethorhelgi
-
tara
-
toshiki
-
sverdkottur
-
ver-mordingjar
-
tharfagreinir
-
thorsteinnhelgi
-
thuridurbjorg