Hver er þá djöfullinn?

Við getum alltaf treyst á að Putin skandaliseri með reglulegu millibili. Um daginn var hann afskaplega öfundsjúkur út í forseta Ísraels fyrir að hafa nauðgað nokkrum konum... Nú eru það samkynhneigðir sem eru vandamálið. Svo er víst búið að útnefna vændiskonuna sem "verk djöfulsins". Ég fór nú í framhaldi af því að spá í hver skapaði vændiskonuna. Var það ekki kaupandinn?

Ekki að þetta hafi nokkur áhrif á pólitískan feril Pútins... nema síður sé.


mbl.is Pútín segir samkynhneigða í Rússlandi „lýðfræðilegt vandamál“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

haha skapaði kaupandin vændiskonuna, skapaði þá eiturlyfjafíkillin eiturlyf og feitabollan mcdonalds?

er kvenfólk algerlega ábyrgðarlaus þegar kemur að því hvort þær selji kynlífsgreiða eða ekki?

Vignir (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 12:27

2 Smámynd: Katrín Anna Guðmundsdóttir

Það fer enginn í vændi nema út af neyð. Umhugsunarvert af hverju þessi "valkostur" er frekar í boði fyrir konur en karla (hjá kk eru kaupendur oftast líka kk). Eftirspurning rekur þennan markað áfram eins og sést berlega á öllum þeirra fjölda kvenna og barna sem seld eru mansali árlega. Síðan er ágætt að hafa í huga að afleiðingar af vændi eru svipaðar/sambærilegar og af öðru kynferðisofbeldi. Kaupandinn á mun meira val en vændiskonan/-karlinn. Þess vegna er hann ábyrgur...

Annars fannst mér þessi frétt áhugaverð út frá þessum útgangspunkti "verk djöfulsins".

Katrín Anna Guðmundsdóttir, 1.2.2007 kl. 12:34

3 identicon

Í þessari frétt er þó verið að kalla gleðigönguna, eða Gay Pride, verk djöfulsins... Sú ganga var líka bönnuð í fyrra, en rússneskir aktífistar gefast ekki upp, og ætla sér að halda gönguna þrátt fyrir bönn!

Ásta (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 12:46

4 identicon

Er ekki upplagt að send Putin afhommarann sem Kiddi Ásgríms var að flytja inn um daginn ??

Kej (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 12:50

5 identicon

Sami "húmor" og var í þessari frétt hér: http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=124991, þar sem það að leika vændiskonu og klámstjörnu var tengt við að leika lesbíu!

Ásta (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 13:02

6 identicon

Gott kvöld, Katrín Anna; og þið öll !

Hægan, hægan Katrín Anna, förum ekki í kerfi, Pútín hefir, miðað við rússneskar aðstæður staðið sig helvíti vel, eða...... hver hefir staðið manna mest uppi í hárinu, á vitfirringnum í Washington, nema Pútin! Sjáðu helvízka kerlinguna, í Berlín (eflaust hin mætasta kona) Angelu Merkel, og nánustu fylgjara hennar, ekki einungis, að þau slefi; heldur og froðufelli af hrifningu, þegar þau Bush hittast, þykist vita, að þú fylgist allvel með fréttum, Katrín Anna.

Með þjóðernissinna kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 21:53

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ekki bölva svona, Óskar minn Helgi.

Jón Valur Jensson, 2.2.2007 kl. 10:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Anna Guðmundsdóttir
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Femínisti og fleira
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 332537

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband