Hver er sparnaðurinn?

Ok. Ég er litlu nær um hvað á að gera í sparnaðarskyni. Hvernig sparar það t.d. að færa verkefni frá ríki til sveitarfélags? Jú það er um breytt fyrirkomulag að ræða en í hverju felst sparnaðurinn er verkið er unnið af jafnmörgu fólki, fyrir sömu laun og þjónustan sú sama? Spyr sú sem ekki veit... Er gert ráð fyrir einkavæðingu í þessu ferli? Er það falið undir orðagjálfri um tilfærslu til sveitarfélaga og heilsugæslustöðva? Hvað þýðir það að nýta eigi betur hjúkrunarrými út á landi? Þýðir það ekki bara það sama og síðast þegar öldruðu fólki „gafst kostur á“ að fara út á land, fjarri ættingjum, vinum og maka? Mökum jafnvel boðið að fara á sitthvort hjúkrunarheimilið í sitthvorum landshlutanum og í báðum tilfellum fjarri öllum sem þau þekkja?

Í fréttinni er einnig talað um að „eftir samruna stofnana verði til sex öflugar einingar.“ Hvaða stofnanir eru verið að tala um???? Eitthvað hefur verið fjallað um St. Jósefsspítala í fréttum, að loka eigi honum. Mér sýnist sem sagt að verið sé að tala um að henda uppsafnaðri sérþekkingu út um gluggann, yfirfæra kostnað yfir á sveitarfélög frá ríki (og ekki er rætt um hvernig tekjur eigi að yfirfærast á móti) og síðan á að eyða fullt af peningum í sameingar og einhverjar skipulagsbreytingar... sé ekki alveg hvaðan sparnaðurinn á að koma en treysti núverandi ríkisstjórn fyllilega til að klúðra þessu rækilega eins og öllu öðru.

*

Viðbót - fór að lesa mbl.is betur eftir þetta blogg og sé að þar eru fleiri fréttir um svokallaðar sparnaðarleiðir og m.a. fjallað um hvaða einingar sameinast - vona að ég verði einhverju nær eftir þann lestur...  


mbl.is Hagræðing um 1,3 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Frosti Heimisson

Líklega má hagræða hressilega með því að nýta einu og sömu manneskjuna til verkefna þar sem áður þurfti tvær.  Heimahjúkrun á vegum sveitarfélags sæi þá um allan pakkann, ekki bara aðhlynningu í heimahúsi.  Með aukinni heimaaðstoð gætu einstaklingarnir jafnvel sparað sér útgjöld sem fylgja því að sækja ákveðna þjónustu.

Frosti Heimisson, 7.1.2009 kl. 15:09

2 Smámynd: Máni Ragnar Svansson

Nú á að leggja lokahnykkinn á "Hag-græðinguna"  Eru ekki einhverjir fleiri með sektarkennd en Bjarni Ármanns og tilbúnir í iðrun og yfirbót og smá raðgreiðslur í ríkiskassann?   Getur ekki einhver af þeim farið í "hraðbankann" og millifært ?  Á sama tíma er varnarmálastofnun enn rekin af lýðnum "skrílnum".  Væri þeim péningum ekki betur varið í að verja líf og heilsu landans, en annars gleðilegt nýtt ár

Máni Ragnar Svansson, 7.1.2009 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Anna Guðmundsdóttir
Katrín Anna Guðmundsdóttir
Femínisti og fleira
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 332542

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband